Innlent

Skjálfti upp á 4 stig við Krýsuvík

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Við Kleifarvatn skammt frá Krýsuvík
Við Kleifarvatn skammt frá Krýsuvík vísir/gva
Jarðskjálfti sem mældist 4 stig varð klukkan 13:10, með upptök við norðanvert Kleifarvatn. Skjálftinn fannst vel á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi en rúmlega fimmtíu skjálftar hafa verið á þessu svæði frá því snemma í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er um hefðbundna jarðskjálftahrinu að ræða á þessu svæði en fylgst er vel með svæðinu.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að annar skjálfti að stærð 3,1 hafi orðið í morgun klukkan 11:58. „Hann fannst einnig í Reykjavík. Skjálftahrina hefur verið á svæðinu frá því í morgun. Skjálftarnir eru grunnir, á um 3 km dýpi. Skjálftahrinan er á flekaskilunum sem liggja um Reykjanesskagann.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×