Innlent

Skjálfti upp á 4,9 við Bárðarbungu

Atli Ísleifsson skrifar
Nokkuð hefur dregið úr skjálftavirkni síðusta sólarhringinn samanborið við dagana á undan.
Nokkuð hefur dregið úr skjálftavirkni síðusta sólarhringinn samanborið við dagana á undan. Vísir/Vilhelm
Skjálfti upp á 4,9 stig mældist við norðurbrún Bárðarbunguöskjunnar klukkan 22:53 fyrr í kvöld.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að annar skjálfti að stærð 3,8 hafi verið á sömu slóðum klukkan 
20:42.

Skjálftavirkni á norðvesturhluta Vatnajökuls hefur verið minni síðasta rúma sólarhringinn eða um helmingur þess sem hún hefur verið undanfarna daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×