Innlent

Skjálftavirkni hefur aukist

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Gosið er enn í fullum gangi en það hefur vakið athygli um heim allan.
Gosið er enn í fullum gangi en það hefur vakið athygli um heim allan. Fréttablaðið/Egill
Skjálftavirkni við Bárðarbungu hefur aukist miðað við það sem verið hefur síðastliðnar tvær vikur. Þetta kom fram á fundi vísindamannaráðs almannavarna sem haldinn var í gærmorgun.

Skjálftarnir voru um 130 talsins síðastliðinn þriðjudag en gosið í Holuhrauni hefur haldist óbreytt og hraunflæði jafnt.

Rúmmál sigsins í miðju Bárðarbungu er nú metið 0,75 rúmkílómetrar en það sígur enn um þrjátíu til fjörutíu sentimetra á dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×