Bíó og sjónvarp

Skjaldborgarhátíðin: „Finndinn“ Hugleikur í Finnlandi

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hugleikur Dagsson lætur gamminn geysa í myndinni Finndið eftir Ragnar Hansson.
Hugleikur Dagsson lætur gamminn geysa í myndinni Finndið eftir Ragnar Hansson.
Dagana 22. – 25. maí næstkomandi fer heimildamyndahátíðin Skjaldborg fram á Patreksfirði. Þetta er í níunda skipti sem hátíðin er haldin. Hátíðinni er ætlað að vera tækifæri fyrir íslenskt kvikmydagerðarfólk og áhugamenn um heimildarmyndir til að koma saman.

Dagskrá hátíðarinnar má sjá inn á Skjaldborg.com en að auki munum við á Vísi kynna nokkrar myndir sem verða til sýnis á hátíðinni. Í lok hátíðarinnar verður besta myndin valin af áhorfendum.

Fyrsta myndin sem tekin verður fyrir er myndin Finndið en þar er skyggnst inn í heim uppistandarans. Þar eru Hugleiki Dagsyni og Ara Eldjárn fylgt eftir er þeir ferðast til Finnlands til að taka þátt í grínhátíð í öðru landi. Leikstjóri myndarinnar er Ragnar Hansson.



FINNDIÐ - STIKLA from Ragnar Hansson on Vimeo.


Tengdar fréttir

Patró nafli heimsins

Skjaldborgarhátíðin, hátíð íslenskra heimildarmynda, verður að vanda á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina og Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, einn af upphafsmönnum hátíðarinnar, segir hana aldrei hafa verið eins eftirsótta og glæsilega.

Skjaldborg á Patreksfirði

Þetta er í níunda sinn sem hátíðin verður haldin en hún hefur fyrir löngu sannað sig sem einn af mikilvægustu viðburðum íslenskrar kvikmyndamenningar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×