Bíó og sjónvarp

Skjaldborg á Patreksfirði

Magnús Guðmundsson skrifar
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir á Skjaldborgarhátíðina – hátíð íslenskra heimildarmynda sem haldin verður um hvítasunnuhelgina, 23.-26. maí, í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði að vanda.

Þetta er í níunda sinn sem hátíðin verður haldin en hún hefur fyrir löngu sannað sig sem einn af mikilvægustu viðburðum íslenskrar kvikmyndamenningar, enda hafa margar af áhugaverðustu heimildarmyndum undanfarinna ára verið frumsýndar þar. Má þar nefna hina frábæru Salóme sem hlaut aðalverðlaun hátíðarinnar í fyrra og hefur í kjölfarið sópað að sér alþjóðlegum verðlaunum.



Stefnt er að því að frumsýna um 15-20 nýjar, íslenskar heimildarmyndir en auk þess verða fersk og spennandi verk í vinnslu kynnt á hátíðinni. Þá verða hefðbundnir jafnt sem óhefðbundnir utandagskrárviðburðir á sínum stað.



Opið er fyrir umsóknir til 17. apríl en umsóknareyðublað og allar frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu hátíðarinnar: www.skjaldborg.com






Fleiri fréttir

Sjá meira


×