Lífið

Skíthræddur Corden klæddi sig upp eins og Lady Gaga á rúntinum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lady Gaga og Corden fóru á kostum á rúntinum.
Lady Gaga og Corden fóru á kostum á rúntinum.
Bandaríska söngkonan Lady Gaga er nýjasti gestur spjallþáttastjórnandans James Corden í liðnum vinsæla Carpool Karaoke.

Í dagskráliðnum fer Bretinn með þekkta tónlistarmenn á rúntinn og endar ávallt á því að syngja með þeim vinsælustu lög þeirra, og það með stæl.

Í hvert sinn sem Carpool Karaoke kemur inn á YouTube horfa margar milljónir á og er um einn allra vinsælasta dagskrálið sjónvarpsþáttar í heiminum að ræða.

Að þessu sinni settist Lady Gaga sjálf undir stýrið og keyrði um L.A. með Corden en Gaga var sjálf að fá bílprófið á dögunum. Bretinn var það hræddur með henni í bílnum að hann setti upp hjálm.

Á rúntinum kom í ljós að Lady Gaga hefur í gengum tíðina keypt um fjögur hundruð flíkur sem voru í eigu poppgoðsins Michael Jackson. Gaga hefur alltaf verið þekkt fyrir skrautlegan klæðaburð og skellti Corden sér í marga fræga búninga sem hún hefur sést í.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×