Innlent

Skipverjinn yfirheyrður áður en tekin verður ákvörðun um áframhaldandi varðhald

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Á fimmtudag hefur maðurinn setið í gæsluvarðhaldi og einangrun í fjórar vikur.
Á fimmtudag hefur maðurinn setið í gæsluvarðhaldi og einangrun í fjórar vikur. vísir/anton brink
Skipverjinn af grænlenska togaranum Polar Nanoq sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa orðið Birnu Brjánsdóttur að bana hefur ekki verið yfirheyrður síðan á föstudag. Birna fannst látin í fjörunni við Selvogsvita þann 22. janúar síðastliðinn en hennar hafði þá verið saknað í átta daga. 

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókn málsins, segir að líkur séu til þess að hann verði yfirheyrður á morgun en gæsluvarðhald yfir manninum rennur út á fimmtudag.

Vill lögreglan yfirheyra manninn áður og má búast við því að ákvörðun um það hvort krafist verði áframhaldandi varðhalds verði tekin í kjölfar yfirheyrslunnar, þá annað hvort á morgun eða á fimmtudagsmorgun, en maðurinn verður þá búin að sitja í haldi og sæta einangrun í alls fjórar vikur.

Grímur segir að enn hafi ekki borist niðurstöður úr lífsýnum sem send voru erlendis til rannsóknar en hann á ekki von á að það dragist mikið lengur. Það getur þó tekið allt frá fjórum og upp í sex vikur að fá niðurstöður úr slíkum rannsóknum og eru nú komnar þrjár vikur frá því að fyrstu sýnin voru send út.

Segist Grímur vonast til þess að niðurstöðurnar komi síðar í þessari viku. Þá á lögreglan jafnframt von á lokaskýrslu krufningar á líki Birnu.

Aðspurður hvort hann hafi einhverja tilfinningu fyrir því hvenær rannsókn ljúki kveðst Grímur telja að rannsóknarteymið komist mjög langt á næstu fjórum vikum og að rannsókninni gæti lokið innan þess tímaramma.

Gögn málsins verða þá send héraðssaksóknara sem tekur ákvörðun um hvort og þá hverjir verða ákærðir í málinu en auk mannsins sem situr í haldi hefur annar skipverji af togaranum réttarstöðu grunaðs manns. Hann sat í gæsluvarðhaldi og einangrun í tvær vikur en var svo látinn laus. Í kjölfarið hélt hann heim til sín á Grænlandi.

Eins og áður hefur komið fram liggur engin játning fyrir í málinu en Grímur vill þó ekki svara því hvort að skipverjinn sem situr í gæsluvarðhaldi neiti sök eða neiti hreinlega alfarið að tjá sig um sakarefnið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×