Innlent

Skipverjinn sem látinn var laus farinn úr landi

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Maðurinn fór með flugi Flugfélags Íslands til Nuuk nú rétt fyrir átta í kvöld. Myndin er frá Reykjavíkurflugvelli fyrr í mánuðinum.
Maðurinn fór með flugi Flugfélags Íslands til Nuuk nú rétt fyrir átta í kvöld. Myndin er frá Reykjavíkurflugvelli fyrr í mánuðinum. Vísir/Ernir
Maðurinn sem losnaði úr haldi lögreglu í dag eftir að hafa setið í einangrun í tvær vikur, grunaður um að bera ábyrgð á dauða Birnu Brjánsdóttur, er farinn úr landi. Maðurinn kom fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness síðdegis og staðfesti þann framburð sem hann hafði áður gefið hjá lögreglu. Hann sætir ekki farbanni og er því frjáls ferða sinna en hefur þó enn réttarstöðu grunaðs manns.

Maðurinn fór með flugi Flugfélags Íslands til Nuuk nú rétt fyrir átta í kvöld.

Jón H.B. Snorrason, yfirsaksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við fréttastofu í dag að þó að hann vildi ekki fara út í einstaka þætti málsins þá væri maðurinn að sjálfsögðu ekki laus ef hann væri sakaður um manndráp.

„Ef hann væri sakaður um þetta manndráp þá væri hann að sjálfsögðu ekki laus,“ sagði Jón H.B.

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókn málsins, segir að miðað við það að annar maðurinn sé látinn laus en hinn sé áfram í haldi þá blasi það við að hlutdeild mannanna í meintu broti sé mismunandi.

„Þessi munur sem þarna kemur fram, þar sem krafist er gæsluvarðhalds yfir einum en hinum ekki, bendir eindregið til þess að aðildin sé mjög mismunandi þó ekki sé hægt að fara nákvæmlega út í það með hvaða hætti það er. Það er ennþá undirliggjandi sama sakarefni,“ segir Grímur.

Þannig að hann er ennþá grunaður um aðild að hvarfi Birnu?

„Já, hann er grunaður um að búa yfir upplýsingum um hvarf hennar.“

Birna Brjánsdóttir sást seinast í eftirlitsmyndavélum við Laugaveg 31 klukkan 05:25 aðfaranótt laugardagsins 14. janúar. Lík hennar fannst í fjörunni við Selvogsvita átta dögum síðar. Lögreglan hefur staðfest að henni hafi verið ráðinn bani.

Jarðarför Birnu fer fram frá Hallgrímskirkju á morgun klukkan 15. Fjölskyldan afþakkar blóm og kransa en bendir þeim á sem vilja minnast hennar að styrkja Slysavarnafélagið Landsbjörg.


Tengdar fréttir

Öðrum skipverjanum sleppt úr haldi

Lögreglan mun ekki fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir báðum skipverjunum sem grunaðir eru um að bera ábyrgð á dauða Birnu Brjánsdóttur, heldur aðeins öðrum þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×