Viðskipti innlent

Skipulagsbreytingar hjá 365

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Jón Gnarr er nýr framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365.
Jón Gnarr er nýr framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365. Vísir/Ernir
365 hefur breytt skipuriti sínu samhliða því að breytingar hafa verið gerðar á framkvæmdastjórn félagsins.

Nýtt svið dagskrársvið hefur verið sett á laggirnar. Undir sviðið heyra sjónvarps-, útvarps og íþróttadeildir 365. Jón Gnarr sem verið hefur ritstjóri innlendrar dagskrár er framkvæmdastjóri hins nýja sviðs.

Samfara þessum breytingum færast mannauðsmál og greiningar undir framkvæmdastjóra fjármálasviðs, Guðmundu Ósk Kristjánsdóttur.

„Ég er mjög ánægður með þessar breytingar á skipulagi félagsins og bind miklar vonir við að þær efli okkur enn frekar í samkeppni og síbreytilegu umhverfi,“ segir Sævar Freyr Þráinsson forstjóri 365. „Við erum að einfalda skipulag og skerpa á ábyrgðasviði stjórnenda.“

Meðfylgjandi er nýtt skipurit félagsins.

Skipurit 365.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×