Körfubolti

Skiptust sex sinnum á forystunni á lokamínútunni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik Portland og Dallas í nótt.
Úr leik Portland og Dallas í nótt. Vísir/AP
Portland hafði betur gegn Dallas, 114-113, eftir æsispennandi lokamínútur í Dallas í nótt.

CJ McCollom skoraði sigurkörfuna fyrir Portland þegar 0,9 sekúndur voru eftir af leiknum en hann var stigahæstur sinna manna með 32 stig. McCollom skoraði sjö síðustu stig Portland í leiknum.

Liðin skiptust á að vera í forystu alls sex sinnum á lokamínútunni en Dirk Nowitzky setti niður tvær þriggja stiga körfur á lokakaflanum, þar af eina sem hefði getað tryggt Dallas sigurinn þegar 3,9 sekúndur voru eftir.

Það er mikið í húfi fyrir þessi lið enda að berjast um að komast í úrslitakeppnina í vor. Portland er sem stendur í níunda sæti vesturdeildarinnar og Dallas því ellefta.



Charlotte vann Brooklyn, 111-107, og batt þar með enda á sjö leikja taphrinu liðsins. Kemba Walker, Nicolas Batum og Marco Belinelli voru með sautján stig hver í leiknum.

Þetta var hins var tíunda tap Brooklyn í röð en Bojan Bogdanovic skoraði 22 stig fyrir liðið í nótt.



Houston vann Orlando, 128-104. James harden skoraði 25 stig og gaf þrettán stoðsendingar fyrir Houston en sigur liðsins var aldrei í hættu í nótt.

Úrslit næturinnar:

New Orleans - Brooklyn 111-107

Houston - Orlando 128-104

Dallas - Portland 113-114

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×