Lífið

Skiptir sér milli Scala og Hörpu

"Stærstu nöfnin í þeim hlutverkum sem ég er að syngja eru menn sem eru komnir yfir sextugt þannig að ég á að geta átt góð tuttugu ár enn ef ég held heilsu.“
"Stærstu nöfnin í þeim hlutverkum sem ég er að syngja eru menn sem eru komnir yfir sextugt þannig að ég á að geta átt góð tuttugu ár enn ef ég held heilsu.“ Mynd/ Kristján Maack
Tómas Tómasson barítón er orðinn meðal fremstu óperusöngvara Íslands. Í haust fer hann með burðarhlutverk í Lohengrin eftir Wagner í Scala-óperunni í Mílanó, ásamt Jonasi Kaufman. Áður en að því kemur syngur hann í Zürich í Sviss og í Il Trovatore í Íslensku óperunni. Gunnþóra Gunnarsdóttir hringdi í kappann og forvitnaðist um sönglífið og frægðina.

Harpa var ekki til þegar ég var síðast á Íslandi árið 2008 svo ég hef ekki séð hana," segir Tómas Tómasson óperusöngvari í símaviðtali og kveðst spenntur fyrir að koma í tónlistarhúsið á hafnarbakkanum.

"Það hafa allir hrósað Hörpu í mín eyru. Við Kristinn Sigmundsson sungum saman í Houston fyrir skömmu, hann hafði þá flutt Vetrarferðina í Hörpu og sagði að það væri alger draumur að syngja þar. Ég hlakka mikið til að prófa þegar óperan Il Trovatore verður frumsýnd."

Verður að eiga heimiliTómas er búsettur í Berlín. "Það eru tvö ár síðan ég flutti til Berlínar og kann mjög vel við mig hér. Ég var í Suður-Frakklandi áður. Hvorutveggja fínir staðir að búa á," segir hann og kveðst hvergi fastráðinn sem söngvari.

"Snemma á minni starfsævi var ég tvö sýningarár í Kaupmannahöfn. Það var samkomulag. Ég var þar í fjórum eða fimm uppsetningum á hvoru sýningarári, annars hef ég aldrei verið fastráðinn."

Spurður hvort hann búi þá hálfgert í ferðatösku svarar hann:

"Já, það má segja það. Á fyrstu starfsárunum var ég eiginlega ekki með neitt heimili en það er alltof tætingslegt. Maður verður að eiga einhvers staðar heima."

Þrátt fyrir heimilið í Berlín verða næstu vikur töluvert tætingslegar hjá Tómasi og tími til æfinga hér heima er knappur. "Mig minnir að ég eigi að verða á minni fyrstu æfingu heima 9. október og frumsýning er þann 20.," segir hann. "Ég er í einni uppsetningu í Zürich í Sviss áður, það er samningur sem ég var búinn að skrifa undir fyrir löngu. Því er ekki hjá því komist að hafa stuttan tíma heima. Ég verð líka bara á fyrstu sýningunum í Hörpu því svo eru æfingar hjá mér í Mílanó í byrjun nóvember. Þar fer ég með hlutverk Friedrich von Telramund í Lohengrin eftir Wagner. Það er í fyrsta skipti sem ég syng á La Scala sem er eitt af allra bestu húsum í heiminum svo það er mjög spennandi."

Með óperunni Lohengrin opnar La Scala sýningarárið þann 7. desember. "Það er dálítið sérstakt hvernig sýningarárið er á Scala og einhverjar sögulegar ástæður fyrir því," segir Tómas. "Það byrjar alltaf 7. desember en samt eru sýningar þar september, október og nóvember, en þær eru hluti af fyrra sýningarári." Hann kveðst hafa sungið hlutverk Telramund í Bayreuth í fyrra en á Scala séu miklar hetjur með honum. "Jonas Kaufman er í titilhlutverkinu og Anja Harteros syngur Elsu. Ég er líka spenntur að vinna með bassanum, Rene Pape, hann er víst magnaður, og svo er hljómsveitarstjórinn hinn heimsfrægi Daniel Barenboim," segir söngvarinn og kveðst reikna með að sýningum ljúki á verkinu í kringum áramótin.

Dorgaði á Grandanum
Á heimsfrumsýningu. Tómas Tómasson sem Mefistófeles í nútímaóperunni Faust-bal eftir Leonardo Balada í Teatro Real í Madrid.Mynd/ Javier del Real
Tómas ólst upp í Reykjavík, í vesturborginni, og segir Grandann og Slippinn hafa verið vinsæl leiksvæði. Þar hafi hann dorgað eftir fiski. "Slippurinn var algert ævintýraland. Hann var minn leikskóli," segir hann. En er langt síðan hann flutti út? "Já, eins og þú heyrir. Það er pínulítið erfitt fyrir mig að setja saman setningar á íslensku." (Það er langt frá því að vera áberandi.) "Ég flutti til London 1993 til framhaldsnáms í söng og hef lítið komið heim eftir það."

Ekki kveðst Tómas geta sagt að hann hafi snemma byrjað að syngja en dregur svo aðeins í land með það.

"Ég var reyndar sísyngjandi sem barn en fór ekki í neitt tónlistarnám eða þannig. Sú músík sem ég heyrði var í útvarpinu og minn söngur fólst í að hlusta á Lög unga fólksins, kópíera þau í kollinum og syngja úti á róló. Ég kynntist tónlist fyrst eitthvað að ráði þegar ég byrjaði í kór Menntaskólans við Hamrahlíð hjá henni Þorgerði Ingólfsdóttur og var þá orðinn átján ára. Ég fór í fyrsta söngtímann tuttugu og eins árs og var orðinn tuttugu og tveggja þegar ég byrjaði í einhverju alvöru námi hjá Elísabetu Erlingsdóttur í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Þar slysaðist ég til að sjá mynd af afa mínum, Tómasi Albertssyni, uppi á vegg í hópi fleiri karla. Ég spurði Elísabetu hverjir þetta væru. Þá sagði hún að þetta væru "postularnir". Þessir menn hefðu komið sér saman um að stofna Hljómsveit Reykjavíkur sem hefði verið grunnurinn að Sinfóníuhljómsveitinni. Þeir hefðu líka staðið að stofnun Tónlistarfélagsins í Reykjavík sem síðan stofnaði Tónlistarskólann í Reykjavík, þannig að þetta voru miklir frumkvöðlar. Afi vann sem setjari hjá Alþýðuprentsmiðjunni og var óbóleikari í sínum frítíma. Pabbi hafði ekkert verið að fræða mig um þetta. Ein systir pabba heitir Messíana og er mikil leikhúskona, krakkarnir hennar spiluðu á hljóðfæri og voru miklu meðvitaðri um tónlistariðkun afa en ég. Önnur systir pabba er Bryndís Tómasdóttir píanóleikari, líklega mesti músíkantinn í fjölskyldunni heima."

Ekki of stressaðurRödd Tómasar kallast dramatísk barítónrödd, eða hetjubarítón. "Fyrstu árin á ferlinum söng ég sem bassi og var til dæmis í bassahlutverkinu í tveimur mismunandi uppfærslum af Il Trovatore, fyrst í Antwerpen í Belgíu og svo í London, á Covent Garden. Það er til DVD-diskur af síðari uppfærslunni. Áður en Stefán Baldursson hafði samband við mig og bað mig að syngja Luna greifa í sýningunni heima var ég búinn að ákveða að vera í því hlutverki næsta vor í Houston í Texas," segir Tómas sem er með bókaða dagskrá nokkur ár fram í tímann.

Tómas fer ótal ferðir yfir Atlantshafið á ári því hann kveðst syngja æ meira vestanhafs. "Mín rödd virðist passa ágætlega í amerísku húsin," segir hann og telur sinn fjörutíu og fimm ára aldur ágætan fyrir barítónrödd eins og sína.

"Stærstu nöfnin í þeim hlutverkum sem ég er að syngja eru menn sem eru komnir yfir sextugt, þannig að ég á að geta átt góð tuttugu ár enn ef ég held heilsu." Hann hlær að spurningunni um hvort hann sé heilsufrík. "Nei, alls ekki – ég reyni bara að fara sæmilega með mig og vera ekki of stressaður yfir hlutunum."

Kvef getur valdið vandræðum hjá söngvurum eins og Tómas lýsir í lokin. "Á einni af sýningunum hér í Berlín á síðasta ári var ég svolítið kvefaður. Oftast hef ég ekki alltof miklar áhyggjur af slíku og syng samt sem áður. Í þetta sinn var ég í erfiðasta hlutverki sem ég hef tekist á við og gat ekki leyft mér að taka neina sénsa og svo kom í ljós að ég var ekki sá eini sem var illa fyrir kallaður. Ég var í hlutverki Hans Sachs í Meistarasöngvurunum eftir Wagner og kollegar mínir sem voru í hlutverkum Walters og Beckmessers voru líka kvefaðir svo leikhússtjórnin fékk þrjá söngvara til að vera til staðar ef á þyrfti að halda. Allt gekk nokkuð vel í fyrsta þætti en í öðrum þætti þurfti varasöngvari að syngja úr hliðarvængnum fyrir tenórinn sem hélt áfram að leika á sviðinu. Þriðji þátturinn byrjaði sæmilega fyrir okkur hina, en svo fór í lokin að við þurftum báðir að viðurkenna ósigur í baráttunni. Þessir þrír karakterar syngja mest í lok óperunnar og þá vorum við kvefaðir og vandræðalegir í þöglum leik á sviðinu en prúðklæddir varasöngvarar okkar stökkvandi inn og út af hliðarsviðinu, syngjandi okkar hlutverk. Það merkilega var að áhorfendur voru himinlifandi yfir að hafa verið viðstaddir svona sérkennilega uppákomu!"

Dagskráin næstu mánuði hjá TómasiSeptember 2012 - júlí 2013

Jochanaan í Salome í óperunni í Zürich í Sviss

Október - nóvember 2012

Il Conte di Luna í Il Trovatore

September 2012 - júlí 2013


Jochanaan í Salome í óperunni í Zürich í Sviss

Október - nóvember 2012


Il Conte di Luna í Il Trovatore í Íslensku óperunni

Desember 2012


Friedrich von Telramund í Lohengrin í La Scala í Mílanó

Janúar 2013

Tomsky í Pikovaya Dama í Vín

Febrúar 2013

Le Grand Pretre í Samson et Dalila í óperunni í San Diego

Mars 2013

Hollendingurinn í Hollendingnum fljúgandi í óperunni í Los Angeles

Apríl - maí 2013

Il Conte di Luna í Il Trovatore í Houston






Fleiri fréttir

Sjá meira


×