Skipting ráðuneyta farin að taka á sig mynd Þorbjörn Þórðarson skrifar 18. maí 2013 13:25 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson.
Skipting ráðuneyta er farin að taka á sig mynd í stjórnarmyndunarviðræðum Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Sjálfstæðisflokkurinn fær fjármála- og efnahagsráðuneyti og atvinnuvegaráðuneyti í nýrri ríkissstjórn auk embættis forseta Alþingis. Stefnt er að því að ljúka stjórnarmyndunarviðræðum um helgina en áður en hægt er að innsigla samstarf flokkanna og kynna það þurfa stofnanir flokkanna, miðstjórn Framsóknarflokksins annars vegar og flokksráð Sjálfstæðisflokksins hins vegar, að samþykkja ríkisstjórnarsamstarf flokkanna tveggja. Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, sagði í skriflegu svari að flokksráð hefði ekki verið boðað til fundar enn.Vegna Hvítasunnuhelgarinnar má því telja líklegt að þetta verði ekki fyrr en á þriðjudag. Ráðherralisti nýrrar ríkisstjórnar er farinn að taka á sig mynd. Eins og fréttastofan greindi frá í gær verður Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og stendur til að hann sitji allt kjörtímabilið.Morgunblaðið í dag greinir frá því að Bjarni Benediktsson verði fjármála- og efnahagsráðherra. Blaðið greinir frá því að auk forsætisráðuneytisins fari Framsóknarflokkurinn með utanríkismál, félags- og tryggingamál, samgöngumál og umhverfismál. Sjálfstæðisflokkurinn muni hins vegar fara með heilbrigðismál, menntamál, dómsmál, atvinnuvegaráðuneytið og fjármálaráðuneytið, auk þess að fá embætti þingforseta. Þetta er þó ekki frágengið og hefur þessi skipting ekki fengist staðfest hjá formönnum flokkanna og aðstoðarmönnum þeirra. Raunar hafa þeir Bjarni og Sigmundur Davíð haldið spilunum mjög þétt að sér og flestir þingmenn flokkanna tveggja hafa því fyrst og fremst fengið fregnir af viðræðunum í gegnum fjölmiðla. Ef það tekst að ljúka stjórnarmyndunarviðræðum um helgina og stofnanir flokkanna samþykkja ríkisstjórnarsamstarf á þriðjudag má búast við að ný ríkisstjórn geti litið dagsins ljós um miðja næstu viku.
Tengdar fréttir Sigmundur Davíð segist ekki svíkja loforð um skuldalækkanir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, gerir ráð fyrir að fáeinir dagar séu í að stjórnarmyndunarviðræðum ljúki. Hann sagði í samtali við Bítið á Bylgjunni í morgun að stór hluti gærdagsins hefði farið í að ræða stöðu ráðuneyta, starfssvið þeirra og fleira. Eins og fram hefur komið er áhugi fyrir því að skipta starfsemi velferðarráðuneytisins upp, þannig að tveir ráðherrar fari með málaflokk þess ráðuneytis. 15. maí 2013 10:11 Skipting ráðuneyta eftir en málefnin frá Málefnavinnu er að mestu lokið í viðræðum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, og Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Síðustu tvo daga hafa þeir farið yfir reynsluna af sameiningu ráðuneyta. Heimildir Fréttablaðsins herma að ráðherrum verði fjölgað um tvo og verkefnum ráðuneyta skipt upp á ný. 16. maí 2013 07:00 Ríkisstjórnarsamstarf kynnt á morgun eða þriðjudag Ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks verður kynnt á morgun laugardag eða á þriðjudag, samkvæmt heimildum fréttastofunnar. 17. maí 2013 12:00 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira
Sigmundur Davíð segist ekki svíkja loforð um skuldalækkanir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, gerir ráð fyrir að fáeinir dagar séu í að stjórnarmyndunarviðræðum ljúki. Hann sagði í samtali við Bítið á Bylgjunni í morgun að stór hluti gærdagsins hefði farið í að ræða stöðu ráðuneyta, starfssvið þeirra og fleira. Eins og fram hefur komið er áhugi fyrir því að skipta starfsemi velferðarráðuneytisins upp, þannig að tveir ráðherrar fari með málaflokk þess ráðuneytis. 15. maí 2013 10:11
Skipting ráðuneyta eftir en málefnin frá Málefnavinnu er að mestu lokið í viðræðum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, og Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Síðustu tvo daga hafa þeir farið yfir reynsluna af sameiningu ráðuneyta. Heimildir Fréttablaðsins herma að ráðherrum verði fjölgað um tvo og verkefnum ráðuneyta skipt upp á ný. 16. maí 2013 07:00
Ríkisstjórnarsamstarf kynnt á morgun eða þriðjudag Ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks verður kynnt á morgun laugardag eða á þriðjudag, samkvæmt heimildum fréttastofunnar. 17. maí 2013 12:00