Innlent

Skiptar skoðanir um lokun Laugavegs

Ákveðið verður á mánudaginn hvort Laugavegur verði aftur gerður að göngugötu í sumar. Skiptar skoðanir eru meðal kaupmanna um málið en samkvæmt könnun vill meirihluti borgarbúa að götunni verði lokað fyrir bílaumferð.

Hugmyndir borgaryfirvalda eru að loka Laugavegi frá Vatnsstíg að Ingólfsstræti og Skólavörðustíg frá Bergstaðastræti. Lokunin á að gilda frá 17.júní til 20. ágúst eða fram yfir menningarnótt sem er umtalsvert lengur en síðasta sumar.

Kaupmenn virðast vera klofnir í afstöðu sinni til göngugötunnar. 40 prósent þeirra sögðust hafa mjög eða frekar góða reynslu af lokuninni síðasta sumar en 35 prósent slæma í könnun sem félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir Miðborgina okkar.

Samkvæmt könnuninni vilja 49 prósent kaupmanna endurtaka lokunina í sumar. En meirihluti þeirra sem eru andvígir eru staðsettir á efri hluta laugavegarins þar sem engin áform eru um að loka.

„Þetta gekk þannig séð allt í lagi, en fyrir utan það að það voru stíflur hérna og við áttum erfitt með að fá vörur í búðina, þurftum að gera það um krókaleiðir, þetta verður svo óhentugt allt saman og skapar óþarfa vandræði," Brynjólfur Björnsson, eigandi Brynju.

„Það voru bara útlendingar og Íslendingar hér og það var stemmning hérna, þetta er svolítið skemmtilegur staður og við erum mjög spenntir að sjá hvað gerist aftur núna," segir Hörður Ágústsson, framkvæmdastjóri Macland.

Borgarbúar virðast vera ánægðir með göngugötuna en í könnun sem Capacent Gallup vann fyrir borgarina voru 63 prósent hlynnt því að loka götunni aftur í sumar en rúm 20 prósent andvíg.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×