Innlent

Skiptar skoðanir um íhaldssemi flokksins

Snærós Sindradóttir skrifar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins. Fréttablaðið/Eyþór
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins. Fréttablaðið/Eyþór Vísir/Eyþór
„Þetta er ekki upplifun allra kvenna í Sjálfstæðisflokknum. Það er enn gríðarlega mikið af öflugum konum að starfa af heilindum í flokknum,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins.

Á fimmtudag sögðu ellefu konur innan Sjálfstæðisflokksins sig úr flokknum, þar á meðal þrír fyrrverandi formenn Landssambands sjálfstæðiskvenna. Ástæðan er meint íhaldssemi flokksins í jafnréttismálum.

„Ég hef fundið fyrir því að konum sé treyst innan flokksins en auðvitað tökum við þessa gagnrýni til skoðunar eins og allt annað. Það má upplifa það af tilkynningu þeirra að konur ráði mjög litlu í Sjálfstæðisflokknum en það er bara alls ekki raunin. Við erum tvær konur af þremur í forystu flokksins, þingflokksformaður er kona, formaður Ungra sjálfstæðismanna er kona, formaður sveitarstjórnarráðs er kona og meirihluti þeirra sem stýra málefnanefndum flokksins er konur,“ segir Áslaug jafnframt.

Sjálfstæðisflokkurinn of íhaldssamur

Skiptar skoðanir eru um stöðu jafnréttismála innan flokksins á meðal Sjálfstæðiskvenna. Þingkonan Sigríður Á. Andersen er sammála Áslaugu Örnu. „Ég hef ekki séð nein dæmi um það að konur eigi erfitt uppdráttar í Sjálfstæðisflokknum.“

Þórey Vilhjálmsdóttir, ein þeirra kvenna sem hættu í flokknum í vikunni, var aðstoðarkona Hönnu Birnu Kristjánsdóttur þingkonu á kjörtímabilinu. Hanna segir mikinn missi að konunum en með úrsögninni sendi þær skýr skilaboð.

„Við í Sjálfstæðisflokknum hljótum að taka þau skilaboð alvarlega. Ég hef sjálf sagt það margoft á þeim tuttugu árum sem ég hef starfað í stjórnmálum að Sjálfstæðisflokkurinn er of íhaldssamur þegar kemur að þessum málaflokki. Jafnréttismál og sömu tækifæri kynjanna eru ekki ásýndar- eða áferðarmál heldur risastórt pólitískt mál sem ég vildi óska að flokkurinn minn væri í forystu fyrir.“

Í sama streng tekur Unnur Brá Konráðsdóttir þingkona. „Að hluta til er [gagnrýni kvennanna] rétt. Ég sé mjög eftir þeim stöllum mínum úr flokknum. Það mun verða erfitt fyrir flokkinn ef framboðslistar endurspegla ekki íslenskt samfélag.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×