Skiptar skoðanir um fjármögnun Vaðlaheiðaganga Hugrún Halldórsdóttir skrifar 26. maí 2012 12:08 Mynd/ kristán kristjánsson
Skiptar skoðanir eru á meðal stjórnarliða um frumvarp fjármálaráðherra um heimild til að fjármagna Vaðlaheiðargöng. Þingmaður Framsóknar telur að málið nái ekki að fara í gegnum þingið. Umræður um frumvarpið stóðu fram eftir miðnætti á Alþingi í nótt. Lítið fór fyrir stuðningsmönnum þess og gerðu bæði stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar verulegar athugasemdir við málið eins og það kemur fram. „Það sem var athyglisvert í gær var stjórnarliðar hafa mjög skiptar skoðanir á þessari framkvæmd," segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. Efasemdir um ríkisábyrgðina á framkvæmdinni voru mjög háværar en ríkisábyrgðarsjóður mælir eindregið gegn því að farið verði í hana á þeim grunni sem lagt er upp með. „Þeir þingmenn sem eru í vinnunni telja að það sé ekki hægt að fara í þetta vegna þess að þetta sé orðið ríkisframkvæmd og þetta er hætt að vera einkaframkvæmd og það er búið að taka þetta verkefni fram yfir í vegaáætlun. Það er bara allt vitlaust út af þessu. Bæði út á landi og hér í Reykjavík," segir Vigdís. „Þetta er náttúrulega bara alvarlegt mál." Þegar umræðunni var frestað rétt eftir miðnætti voru sjö enn á mælendaskrá, þar af helmingur stjórnarliðar. Þráðurinn verður líklegast tekinn upp á þinginu að nýju um miðja næstu viku. „Þetta mál er ekkert að fara í gegnum þingið," segir Vigdís. „Það var lagt til að þetta yrði sett inn í nefnd aftur til að þess að finna út úr þessu, fjárlaganefnd og umhverfis- og samgöngunefnd. Og reyna að fá til sín einhverja ráðgjafa því það gengur ekki að það sé verið að keyra svona mál í gegn án ráðgjafar, það er ekki hægt."
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira