Innlent

Skip strandað í Þorskafirði

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Loftmyndir
Rannsóknarskipið Dröfn er strandað í Þorskafirði á sunnanverðum Vestfjörðum. Landhelgisgæslunni barst um klukkan þrjú í dag tilkynning um strandið. Búið er að kalla út þyrlu gæslunnar sem og björgunarsveitir á svæðinu.

Engin hætta er talin á ferðum og er þyrlan nú á leið á vettvang. Þá verður metið til hvaða aðgerða verður gripið samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×