Innlent

Skip Eimskips missti nokkra gáma í sjóinn

Bjarki Ármannsson skrifar
Gámaskipið Dettifoss.
Gámaskipið Dettifoss. Vísir/GVA
Gámaskipið Dettifoss, sem er í eigu Eimskips, missti fyrir stuttu nokkra gáma í sjóinn um 160 mílum norðvestan Færeyja.

Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, segir ekki víst að svo stöddu hversu margir gámar hafi farið út fyrir. Aftakaveður sé á svæðinu og menn ekki sendir upp á dekk í slíkum aðstæðum til að athuga hvað hafi farið í sjóinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×