Skilur núna allt þetta ömmu- og afatal

Vísir Lífið 03. febrúar 2012 15:54
Skilur núna allt þetta ömmu- og afatal
Mynd/Stefán Karlsson
Unnur Steinsson, vörustjóri Lyfju og ein farsælasta sýningarstúlka landsins, situr aldrei auðum höndum en ásamt starfi sínu, áhugamálum og uppeldinu stefnir hún á að opna heimasíðu í ferðaþjónustunni innan skamms. Hún settist niður með Lífinu og rifjaði upp skemmtilegar sögur úr fortíðinni og ræddi það hvernig er að vera amma og ungamamma í senn.















Stefndirðu alltaf á þann stað sem þú ert á í dag eða hefur lífið leitt þig áfram?
Ég hef starfað sem vörustjóri hjá Lyfju frá árinu 2005. Starfið felst meðal annars í samskiptum við birgja, verðlagningu og vöruvali verslana Lyfju og Apóteksins, vörutengdum markaðsmálum, útliti verslana, útgáfu tímaritsins Lifið heil svo eitthvað sé nefnt.
Stefna hvers og eins í lífinu getur verið eins margbreytileg og maðurinn er sjálfur og hún getur líka tekið U-beygjur hvenær sem er. Ég hef verið svo heppin að hafa fengið að prófa margt á minni starfsævi þó vissulega hafi það oft tengst svipuðum geira. Ég hef alla tíð haft afskaplega gaman af markaðsmálum og hef sótt mér nám af og til inn í bæði Háskóla Íslands sem og Háskólann í Reykjavík í þeim efnum. Ég starfaði sem flugfreyja til margra ára en fór síðan í markaðsnám og réð mig á auglýsingastofu þar sem ég vann við almannatengsl og markaðsmál. Ég hef einnig rekið eigið fyrirtæki og starfað við ferðaþjónustu þannig að stefnan hefur einhvern veginn alltaf verið í þessa átt. Það er að segja markaðsmál með áherslu á samskipti og góða þjónustu. Síðan er aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér.



Þú byrjaðir mjög ung að sitja fyrir og kemst í topp fimm í Miss World árið 1983 – hversu mikið heldurðu að öll þessi sviðsframkoma og reynsla hafi mótað líf þitt og feril?
Alveg örugglega helling, þó svo ég hafi nú ekki verið óöruggt ungmenni þá er engin spurning að það sem á eftir kom, sér í lagi hvað starf varðar, þá hafði það áhrif. Ég tók að mér alls konar kynningar, vann við sjónvarp til margra ára, sat fyrir á auglýsingamyndum bæði fyrir innlenda og erlenda aðila og þó að mörgum finnist það ekki merkileg störf þá borga þau alveg saltið í grautinn og vel það. En það sem kannski situr mest eftir eru allar skemmtilegu minningarnar frá þessum störfum, fólkið sem maður vann með og uppákomurnar sem maður lenti í. Það er ómetanlegt.



Þekkt er orðið að þú varst komin þrjá mánuði á leið í Miss World-keppninni og þurftir þar af leiðandi að láta dómnefndina vita þegar þú varst komin í topp fimm, hvað fór í gegnum huga þinn þegar þú varst komin svona langt í keppninni? Ég verð nú að viðurkenna að ég fór nú ekkert í baklás yfir því. Það hafði spurst út þarna í lokin á keppninni að stúlka frá Evrópu myndi vinna og við vorum bara tvær eftir. Ég átti nú ekki von á að Íslandi ynni Stóra-Bretland og var því alveg pollróleg yfir þessu. Mér fannst hins vegar rétt af mér að láta vita hvers eðlis væri hjá mér en hvort að það hafi haft einhver úrslitaáhrif held ég nú ekki. Ég var bara sátt við mig og hlakkaði til að takast á við það sem fram undan var hjá mér.



Upplifðirðu einhverja ókosti við það að verða þekkt andlit? Nei, ég get ekki sagt það, mér þykir alltaf jafn vænt um þegar fólk kannast við mig eða þekkir frá fyrri tíð – spyr jafnvel hvernig gangi með Helgu Sóleyju eða hvernig ömmubarninu dafnar. Við Íslendingar erum eins og ein stór fjölskylda.



Hvaða fyrirsætuverkefni stendur upp úr á ferlinum og af hverju? Ég man að þegar ég var að byrja í þessum „bransa" þá var draumurinn að leika í Coca Cola-auglýsingu, því þær voru alltaf svo flottar og glæsilegar. Sá draumur rættist nú ekki en ég komst nálægt honum þegar ég fékk að auglýsa sykurlausa drykkinn TAB á Íslandi en hann var á þeim tíma í Coca Cola-fjölskyldunni.
Ég held ég verði samt að segja að skemmtilegasta verkefnið sem ég tók að mér var fyrir Mercedes-Benz. Það var haustið 1997, er Ágúst Baldursson fékk það verkefni að gera myndband fyrir Benz-umboðið í Þýskalandi til að kynna þessa nýju bíla fyrir heiminum. Fluttir voru inn tveir glænýir Benzar sem hvergi höfðu sést áður. Þeir komu til landsins með tveimur umsjónarmönnum og það mátti enginn sjá þessi herlegheit og var þeim því pakkað inn á milli þess sem þeir voru myndaðir. Það var nánast farið með þá eins og hernaðarleyndarmál. Með mér í þessum tökum var leikarinn Valdimar Flygenring og við hlógum oft og mikið að þessu á meðan á tökum stóð. Þessi auglýsing var tekin upp á einni viku á Suðurlandinu, allt frá Hvolsvelli til og með Hafnar í Hornafirði, þar sem náttúra Íslands er eins stórkostleg og margbreytileg og hún getur verið. Þarna krúsaði maður um á glænýjum og ósýndum Benzum með kvikmyndaþyrlur fyrir ofan sig eins og enginn væri morgundagurinn. Mjög eftirminnilegt enda sérvalið fólk í hverju starfi.



Telurðu fyrirsætuheiminn hafa tekið miklum breytingum frá því að þinn ferill hófst? Ef eitthvað, þá er hann sjálfsagt orðinn fagmannlegri. Það eru margar stúlkur og jafnvel strákar líka sem hafa haslað sér völl erlendis og flest hafa þau byrjað hér heima svo okkar góða fólk sem starfar í þessu fagi er greinilega að vinna sína vinnu vel.



Fylgistu með fegurðarsamkeppnum í dag? Nei, ég geri minna af þú nú en áður, en það eru alltaf einhverjar stúlkur sem hringja í mig til að fá lánaða kjóla. Annaðhvort úr kjólasafni móður minnar heitinnar eða einhverja kjóla sem Unnur Birna skildi eftir heima eftir sitt kjólatímabil. Þetta eru yfirleitt stúlkur af landsbyggðinni. Ég hef reynt að gera mitt besta og hjálpað þeim sem ég hef getað. En ég hef ekki horft á eða farið á þessar keppnir í mörg ár.


Eftir að hafa alið þrjú börn; skírt, fermt, útskrifað, krýnt ungfrú heim og svo framvegis, eignaðist þú dóttir 44 ára gömul. Hvernig upplifun var það? Það var stórkostleg upplifun og mikil forréttindi. Það er ekkert sjálfgefið að fæða heilbrigt barn og ég hef verið alveg einstaklega heppin með mína einstaklinga.



Gekk meðgangan vel og fæðingin? Já, hún gekk mjög vel. Þau skipti sem ég hef gengið með barn hef ég gert flest það sem ég geri dags daglega. Það skiptir mestu máli að þekkja sín mörk og kunna að hvíla sig þegar líkaminn segir svo.
Ég myndi kannski ekki mæla með því að allar konur ættu að eignast barn svona seint, það er ekki eitthvað sem maður á að plana. Maður er auðvitað líkamlega best til þess fallinn á aldrinum 20-30 ára.
Eftir 35 ára aldurinn fer líkamsstarfsemin að hægjast og maður er lengur að ná sér í fyrra form eftir fæðingu. Líkurnar eru líka meiri að eitthvað geti verið að eftir því sem maður eldist. Ég er hins vegar sannfærð um að þroski manns til að ala upp og njóta er margfalt betri á þessum aldri en þegar maður er rétt rúmlega tvítugur eins og ég var með mitt fyrsta.



Móðurhlutverkið í dag og þá, er meira um dekur? Ég hef nú allatíð dekrað við börnin mín og mun eflaust halda því áfram um ókomna tíð. Ég nýt þess mjög að eyða tíma með Helgu Sóleyju, hún er skemmtileg og fróðleiksfús, ung kona. Hún eyðir miklum tíma ein með okkur hjónunum og leiðist það ekki. Ég trúi því að hún beri gamla sál og eigi eftir að hugsa vel um aldraða foreldra sína í framtíðinni.



Hvernig tilfinning var svo að verða amma stuttu síðar? Yndislegt í einu orði sagt! Ég skil núna allt þetta ömmu- og afatal. Ég var nú svo heppin á sínum tíma að búa alltaf í mikilli nálægð við foreldra mína og nutu börnin mín góðs af því. Ég vona að ég nái með tærnar þar sem mamma mín hafði hælana í þeim efnum. Þá verð ég sátt.


Hittist þið mæðgurnar reglulega með dætur ykkar? Já, við hittumst oft og Helga Sóley mín er afar hrifin af litlu frænku sinni. Ég vinn skammt frá heimili Unnar Birnu og kíki því oft á þær mæðgur í hádeginu svo kemur litla fjölskyldan líka oft í heimsókn til okkar í Árbæinn.
Þær eiga tvímælalaust eftir að alast upp saman enda ekki nema fjögur ár á milli þeirra.



Þú ert útivinnandi mamma, amma, eiginkona, hestakona … hvað gerir Unnur Steinsson þegar hún þarf tíma fyrir sjálfa sig? Hvað er það nú? Ég er ein af þessum ofvirku konum sem þarf alltaf að vera að. Það er svo merkilegt að í gegnum tíðina þá hefur aldrei komið að þessu mómenti að ég þurfi einhvern svona tíma fyrir sjálfa mig.
Kannski hefur þetta leyst af sjálfu sér með hestabröltinu í mér en það kemur fyrir að ég fari ein í útreiðartúr, maður öðlast ákveðna hugarró við það að vera úti í náttúrunni aðeins með sjálfri sér og hestinum sínum.



Eitthvað að lokum? Ég hef ætíð haft það að leiðarljósi að maður uppsker eins maður sáir en eigi samt engu að síður að taka áhættu af til. Maður veit nefnilega ekki hvernig hlutirnir þróast nema láta á þá reyna.

Fleiri fréttir - Lífið

Lífið 26. maí. 2012 10:15

Paris situr fyrir í Cannes

Paris Hilton sat fyrir hjá ljósmyndaranum Ellen Von Unwerth á kvikmyndahátíðinni í Cannes ...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 11:00

Aldrei reynt við Rafaeli

Fyrirsætan Bar Rafaeli, fyrrverandi kærasta leikarans Leonardos DiCaprio, hefur kvartað yf...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 09:30

Tölvan lagar röddina

Will.i.am úr hljómsveitinni Black Eyed Peas þarf á hjálp tölvutækninnar að halda þegar han...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 08:30

Óþægilegt á nærbuxunum

Zac Efron segir að það hafi verið krefjandi að leika í myndinni The Paperboy og að hlutver...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 08:00

Hrefna Rósa blandar sósur

„Mig langar að gera gúrmevöru aðgengilegri fyrir almenning,“ segir kokkurinn H...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 07:00

Sjö tomma frá Retro

Hljómsveitin Retro Stefson hefur sent frá sér sjö tommu vínylplötu með laginu Qween. Á B-h...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 06:30

Pósa nakin fyrir sýningu í Ósló

„Rauði þráðurinn í gegnum sýninguna er okkar upplifun af umhverfinu sem við erum í,&...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 03:13

Williams á von á dóttur

Robbie Williams á von á dóttur með eiginkonu sinni Ayda Field. Söngvarinn er mjög spenntur...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 16:30

Ólafur og Dorrit heimsækja Landspítalann við Hringbraut

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær þegar forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorr...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 16:30

Vel heppnuð endurkoma Roses

Breska hljómsveitin The Stone Roses spilaði óvænt á sínum fyrstu tónleikum í sextán ár í b...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 16:00

Skreytir Gretu Salóme

Gullsmiðurinn Sigurður Ingi, hönnuðurinn á bak við Sign skartgripalínuna sér um skraut Gre...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 15:15

Halló Neon!

Sumarið er tíminn og með sumrinu koma litirnir. Nú í ár eru litirnir heldur skærari en áðu...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 14:30

Tekinn fram yfir þekkta norska leikara

"Þetta er ein af þessum stóru auglýsingum sem maður vill gjarnan næla sér í,“ segir ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 14:15

Britney fersk í X-Factor

Söngkonan Britney Spears, 30 ára, var brosandi klædd í bleikan kjól þegar hún mætti í töku...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 14:00

Hundar bjarga lífum

Hundar eru ekki aðeins besti vinur mannsins heldur eru þeir einnig taldir heilsubætandi. H...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 13:30

Græða á götutísku

Scott Schuman og Garance Doré halda úti tískublogginu The Sartorialist, sem hefur lengi ve...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 12:30

Barnshafandi Uma Thurman

Leikkonan Uma Thurman, 42 ára, var mynduð á hraðferð í New York í gær með djús í hendi og ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 11:30

Frægir stíga út úr skápnum

Bandaríski leikarinn Jim Parsons, sem þekktastur er fyrir túlkun sína á hinum elskulega en...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 11:15

Sigga hefur tröllatrú á Gretu og Jónsa

"Ég er stödd á Spáni og mun horfa á keppnina með fjölskyldunni hérna úti. Ég hlakka mikið ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 10:30

Horfir á Eurovision í faðmi fjölskyldunnar

"Ég verð heima hjá mér með fjölskyldu minni og horfi á Ísland taka þátt. Ég skipti svo sna...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 09:45

Opnunargleði Górillu

Viðburðabarinn Górillan stimplaði sig inn með látum í skemmtanalíf miðborgarinnar í síðust...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 09:00

Helgarmaturinn - Matti gefur góða Eurovision-uppskrift

Matthías Matthíasson söngvari með meiru gefur okkur uppskrift að dýrindis laxi með góðu sa...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 08:00

Júniform lokar

Birta Björnsdóttir, fatahönnuður sem rekið hefur verslunina Júniform í tíu farsæl ár heldu...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 16:00

Nýtt andlit Material Girl

Georgia May Jagger, dóttir tónlistarmannsins Micks Jagger og fyrirsætunnar Jerry Hall, er ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 15:00

Kristján samdi fyrir Klaufana

Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson samdi nánast öll lög og texta á væntanlegri plötu ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 11:00

Glymskrattinn í leikhúskjallaranum

Dans-og tónleikaverkið Glymskrattinn var frumsýnt á miðvikudaginn í Þjóðleikhúskjallaranum...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 10:15

Styrkja UN Women

Tónleikar til styrktar UN Women fara fram á Gauki á Stöng í kvöld. Það er vefverslunin Gog...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 10:00

Depp ættleiddur

Leikarinn Johnny Depp var ættleiddur af Comanche-indíánum frá Nýju Mexíkó og tilheyrir nú ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 09:00

Bassi heitir loksins Bassi

„Ég er ekkert þekktur sem Björn þannig að það lá einhvern veginn beint við að kýla þ...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 23:37

Jim "Sheldon" Parsons kominn út úr skápnum

Bandaríski leikarinn Jim Parsons, sem þekktastur er fyrir túlkun sína á hinum elskulega en...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 21:30

Fimmta Die Hard-myndin vonandi sú besta

Bruce Willis vill að fimmta Die Hard-myndin verði betri en sú fyrsta í seríunni. Hann samþ...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 17:30

Ótrúlegt að fá Þursaflokkinn

"Það er ótrúlegt að fá þá því þeir spila svo sjaldan,“ segir grínistinn Ari Eldjárn....  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 17:00

Katherine Heigl með ættleidda dóttur sína

Leikkonan Katherine Heigl var á ferðinni með nýjasta meðlim fjölskyldunnar í Beverly Hills...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 16:30

Will Smith með alla fjölskylduna á frumsýningu

Will Smith, Jada Pinkett Smith, Jayden Smith, og Willow Smith mættu saman til frumsýninga...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 14:30

Kossaflens í Cannes

Twilight stjörnurnar Rob Pattinson, 26 ára, og Kristen Stewart voru innileg við hvort anna...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 14:30

Nicole Scherzinger glæsileg í rauðum kjól

Söngkonan Nicole Scherzinger var glæsileg að sjá í gærkvöldi er hún fór út að borða á Nobu...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 13:30

Ástfangin Kim

Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian og unnusti hennar tónlistarmaðurinn Kanye West leiddust í...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 11:30

Rihanna og Jennifer Lopez slógu í gegn á Idol sviðinu

Hún var ekki af verri endanum sýningin sem boðin var upp á í lokaþætti American Idol sem f...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 11:30

Bono örlátur

Bono, söngvari U2, yfirgaf veitingahús í London ásamt eiginkonu sinni Nancy Shevell...Bono...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 10:30

Hrærð Idol stjarna

Phillip Phillips sigraði American Idol með sóma í nótt en lokaþátturinn fór fram í Nokia l...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 18:15

Vill ekki vera stjarna

Leikarinn Tom Hardy hefur engan áhuga á að vera kvikmyndastjarna sem er sífellt í sviðsljó...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 17:00

Kosin kynþokkafyllst

Ísraelska fyrirsætan Bar Refaeli var á dögunum kosin kynþokkafyllsta kona í heimi af lesen...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 15:00

Einsamall í Cannes

Leikarinn Brad Pitt mætti einn síns liðs á rauða dregilinn í Cannes í vikunni. Unnusta han...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 15:00

Gisele ólétt?

Ofurfyrirsætan Gisele Bundchen er ólétt að sínu öðru barni ef marka má slúðurmiðla vestan ...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 14:30

Meiri Hungurleikar

Önnur bókin í þríleik Suzanne Collins um Hungurleikana, Eldar kvikna, er að koma út hjá Fo...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 13:00

Dramatísk helgi í bíóhúsunum

Gelgjutryllirinn Zac Efron sýnir á sér nýjar hliðar í dramamyndinni The Lucky One sem var ...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 12:30

Bölvun hvílir á hlutverki Galifianakis

Gamanleikarinn Zach Galifianakis er talinn líklegur til að fara með hlutverk Ignatius Jacq...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 12:30

Fyrsta stiklan úr The Great Gatsby

Fyrsta stiklan úr myndinni The Great Gatsby með Leonardo DiCaprio og Carey Mulligan í aðal...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 11:00

Bítlamynd á þrjár milljónir

Sjaldséð ljósmynd af Bítlunum að labba í „hina áttina“ yfir gangbrautina á ums...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 10:30

Svartklæddir á tímaflakki

Will Smith bregður sér aftur í hlutverk Agent J í stórmyndinni Men in Black sem frumsýnd v...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Lífið / Skilur núna allt þetta ömmu- og afatal