Innlent

Skilja þurfti nokkra bíla eftir

Samúel Karl Ólason skrifar
Skiilja þurfti nokkra bíla eftir.
Skiilja þurfti nokkra bíla eftir. Vísir/GVA
Tilkynnt var um nokkra bíla sem höfðu lent utan vegar skammt norðan við Akureyri í gær, eftir að blindbylur skall þar á. Lögregluþjónar voru kallaðir til aðstoðar, sem og björgunarsveitin Súlur. Á meðfylgjandi myndbandi frá lögreglunni á Norðurlandi eystra má sjá aðstæður á svæðinu. í gærkvöldi.

Myndbandið var tekið á vél á vesti lögreglumanns.

Lögreglan segir aðstæður hafa verið nokkuð erfiðar, en þó hafi allt gengið vel að lokum, „með góðu samstarfi allra“. Nokkra bíla þurfti þó að skilja eftir og voru ökumenn og farþegar þeirra fluttir til Akureyrar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×