Erlent

Skildi skilríkin eftir í bílnum

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Sönghópur skipaður jafnt innflytjendum sem innfæddum Berlínarbúum hóf upp raust sína á jólamarkaðnum í Berlín og hvatti til samstöðu allra.
Sönghópur skipaður jafnt innflytjendum sem innfæddum Berlínarbúum hóf upp raust sína á jólamarkaðnum í Berlín og hvatti til samstöðu allra. vísir/epa
Þýska ríkisstjórnin samþykkti í gær að auka notkun eftirlitsmyndavéla. Af persónuverndarástæðum hafa til þessa verið strangar reglur í gildi í Þýskalandi um slíkt eftirlit.

Þessi ákvörðun er tekin vegna árásarinnar á jólamarkað í Berlín á mánudaginn, sem kostaði tólf manns lífið. Við rannsókn málsins hefur lögreglan ekki haft mikið gagn af upptökum úr eftirlitsmyndavélum.

Borgarstjórnin í Berlín hefur sagt ástæðulaust að fjölga eftirlitsmyndavélum, þrátt fyrir árásina á mánudag.

Árásarmaðurinn var í gær enn ófundinn, en hann varð tólf manns að bana og særði nærri 50 manns, þar af 30 alvarlega, þegar hann ók inn á jólamarkaðinn á stórri flutningabifreið.

Lögreglumenn á vakt á jólamarkaðnum á Breidscheid-torgi í Berlín þar sem tólf manns létu lífið og tugir særðust á mánudagskvöldið.vísir/EPA
Lögreglan leitaði að rúmlega tvítugum manni, Anis Amri, sem hún hafði grunaðan um að vera hættulegan vegna tengsla við íslamska öfgamenn. Hann er frá Túnis og sótti um hæli í Þýskalandi í apríl síðastliðnum.

Umsókn hans var hafnað í sumar en stjórnvöld höfðu fallist á að fresta því tímabundið að vísa honum úr landi. Skilríki hans fundust undir bílstjórasæti vöruflutningabifreiðar­innar sem ekið var inn í mannfjöldann á jólamarkaðnum í Berlín síðastliðið mánudagskvöld.

Árásarmaðurinn virðist hafa stolið bifreiðinni frá pólsku flutningafyrirtæki. Bifreiðarstjórinn, sem var pólskur ríkisborgari, fannst látinn í bílnum með sár eftir bæði hnífstungur og byssuskot.

Þýskir fjölmiðlar segjast hafa heimildir fyrir því að hann hafi átt í átökum við árásarmanninn þegar bifreiðinni var ekið inn á jólamarkaðinn.

Árásarmaðurinn hafi skotið hann um það leyti sem bifreiðin stöðvaðist. Þetta kemur heim og saman við frásagnir vitna um að hvellur mikill hafi heyrst frá bifreiðinni þegar henni var ekið inn í mannfjöldann.

Vígasamtökin Íslamskt ríki, eða Daish, hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni, en samtökin hafa ítrekað skorað á fólk um heim allan að fremja hryðjuverk. Anis Amri er sagður hafa haft tengsl við öfgaklerk að nafni Abu Walaa, sem var handtekinn í bænum Bad Salzdetfurth þann 8. nóvember síðastliðinn. Sá var ákærður fyrir að hafa reynt að fá ungt fólk til að ganga til liðs við Daish-samtökin.

Annar hælisleitandi var í fyrstu grunaður um verknaðinn en hann var látinn laus þar sem ekkert benti til sektar hans. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×