Fótbolti

Skildi ekki þjálfarann en tók ummælunum sem hrósi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigrún Ella Einarsdóttir hefur átt frábært tímabil með Stjörnunni.
Sigrún Ella Einarsdóttir hefur átt frábært tímabil með Stjörnunni. vísir/valli
Ísland mætir Serbíu í undankeppni HM 2015 á Laugardalsvelli. Ísland á ekki lengur möguleika á sæti í úrslitakeppninni og því hefur Freyr Alexandersson lagt áherslu á að gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri. Í þeim hópi er Sigrún Ella Einarsdóttir sem stóð sig vel þegar hún kom inn á í sínum fyrsta landsleik um helgina, er Ísland lagði Ísrael, 3-0.

„Mér leið vel og það var gott að koma inn á í stöðunni 2-0. Þá var maður aðeins rólegri fyrir vikið,“ sagði Sigrún Ella, sem uppskar mikið hrós frá þjálfaranum fyrir frammistöðu sína.

„Það er alltaf gott að fá hrós en ég reyni að halda mér á jörðinni og sinna minni vinnu áfram,“ segir hún en Sigrún Ella veit ekki hvort frammistaðan dugir til að fá sæti í byrjunarliðinu í kvöld.

„Fanndís stóð sig vel í leiknum, skoraði til dæmis frábært mark, og það verður erfitt að slá hana út úr liðinu. Ég æfi bara og spila eins vel og ég get,“ segir Sigrún Ella sem kom til Stjörnunnar frá uppeldisfélagi sínu, FH, fyrir síðasta tímabil. Þar hefur hún blómstrað og verið í lykilhlutverki í liði Stjörnunnar sem er aðeins einu stigi frá Íslandsmeistaratitlinum.

„Ég skipti um lið til að fá stærri áskorun og mér hefur gengið ágætlega. Ég hef mín markmið en framtíðin verður að leiða í ljós hvort ég næ þeim.“

Freyr sagði fyrir leikinn gegn Ísrael að Sigrún Ella væri kantmaður af „gamla skólanum“ og að það væru leikmenn að hans skapi. „Ég vissi reyndar ekki alveg hvað hann átti við en ég tók því bara sem hrósi,“ sagði hún og hló.

Leikurinn í kvöld verður sá síðasti hjá markverðinum Þóru B. Helgadóttur en hann hefst klukkan 17.00 og verður í beinni textalýsinu á íþróttavef Vísis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×