Viðskipti innlent

Skilanefndarmaður SPB fékk forkaupsrétt í stóru leigufélagi

Haraldur Guðmundsson skrifar
Heimavellir og Ásabyggð sameinuðust rétt fyrir áramót. Markaðsverðmæti fyrirtækisins miðað við útistandandi hlutafé nemur 13,5 milljörðum króna. Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ) var langstærsti kröfuhafi SPB. Fréttablaðið/Stefán
Heimavellir og Ásabyggð sameinuðust rétt fyrir áramót. Markaðsverðmæti fyrirtækisins miðað við útistandandi hlutafé nemur 13,5 milljörðum króna. Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ) var langstærsti kröfuhafi SPB. Fréttablaðið/Stefán
Slitastjórn Sparisjóðabankans (SPB) seldi félagi í eigu fyrrverandi skilanefndarmanns þrotabúsins tíu prósenta hlut í leigufélaginu Ásabyggð síðla árs 2015. Kaupverðið nam 10,6 milljónum króna og innan við ári síðar keypti hann sex prósent til viðbótar af Eignasafni Seðlabanka Íslands (ESÍ). Þessi 16 prósenta hlutur breyttist rétt fyrir síðustu áramót í 4,9 prósent í leigufélaginu Heimavöllum sem eru nú metin á um 664 milljónir króna. Eigandi hlutarins, lögmaðurinn Jón Ármann Guðjónsson, fullyrðir að hann hafi borgað um 100 milljónir króna fyrir eignar­hlutinn með kaupum á hlutafé og þátttöku í hlutafjáraukningum í Ásabyggð. Auk þess þáði hann ekki laun fyrir vinnu sína fyrir slitastjórnina á árunum 2012 til 2015.

Samkvæmt svari Tómasar Jónssonar, fyrrverandi formanns slita­stjórnar SPB, við fyrirspurn Markaðarins var samið við Jón Ármann í mars 2013 um forkaupsrétt á tíu prósentunum vegna þekkingar hans á rekstri Ásabyggðar. Jón hafði þá setið sem stjórnarformaður leigufélagsins og Fjárfestingarfélagsins Teigs ehf., sem hélt þá utan um 50 prósenta hlut SPB í Ásabyggð, vegna setu sinnar í skilanefndinni.

„Skilanefndin lauk störfum í lok árs 2012 og þá var Jón búinn að vera þarna í bankanum í tvö þrjú ár og þekkti margt. Við nýttum okkur það þegar slitastjórnin tók við eignunum. Hann aðstoðaði okkur með nokkur mál og þar á meðal þetta en við vildum halda þessu eins lengi og við gátum og högnuðumst ágætlega á því,“ segir Tómas.

Skilaði 732 íbúðum

Ásabyggð á Ásbrú í Reykjanesbæ hét áður Háskólavellir og var stofnað árið 2007 utan um kaup á 1.500 íbúðum auk atvinnuhúsnæðis á gamla varnarliðssvæðinu. SPB fór inn í hluthafahóp leigufélagsins í apríl 2008 þegar bankinn keypti Fjárfestingarfélagið Teig af Runólfi Ágústssyni, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst. Bankinn fór í greiðslustöðvun í mars 2009 og skipaði Fjármálaeftirlitið (FME) þá skilanefnd yfir honum. Jón Ármann tók sæti í henni og varð stjórnarformaður Ásabyggðar í júní 2010. Gegndi hann sömu stöðu hjá Teig frá ágúst 2009 og þangað til félagið var afskráð þann 18. nóvember síðastliðinn.

Leigufélagið á Ásbrú keypti alls 89 fasteignir, þar af 76 fjölbýlishús, á 11,6 milljarða króna. Eins og kom fram í frétt DV í október 2015 þá greiddu þáverandi eigendur Ásabyggðar alls 4,1 milljarð króna til ríkisins fyrir eignirnar árið 2008. Þeir greiddu aftur á móti aldrei milljarðana 7,5 sem ríkið átti að fá árin á eftir. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, neyddist því í september 2014 til að leysa til sín 732 íbúðir sem voru áður í eigu Ásabyggðar. Yfirtók Kadeco einnig 7,5 milljarða króna skuld leigufélagsins við ríkissjóð en fékk á móti skuldabréf að verðmæti 2,5 milljarðar. Eigendur Ásabyggðar héldu eftir 713 íbúðum á Ásbrú sem þeim hafði tekist að koma í útleigu. Samkvæmt frétt DV í október 2015 voru þær þá metnar á 9,7 milljarða.

„Síðan var endursamið og þá fyrst var kominn einhver rekstrargrundvöllur fyrir það sem eftir stóð,“ segir Jón Ármann í samtali við Markaðinn.

Keyptu einnig af ESÍ

Teigur átti níu prósenta hlut í Ásabyggð árið 2011 en 50 prósent í lok árs 2012. Aukninguna má rekja til ákvarðana Teigs og Klasa fjárfestingar ehf. um kaup á fleiri hlutum í félaginu þegar fyrrverandi hluthafarnir, Íslandsbanki, slitabú VBS fjárfestingarbanka og Landsbankinn, ákváðu að afsala sér hlutum sínum í félaginu. Samkvæmt svari Tómasar töldu þessir fyrrverandi eigendur að ekkert framtíðarvirði væri í félaginu. Teigur greiddi málamyndagjald eða 184 þúsund krónur fyrir 41,3 prósenta aukahlut og þegar Lögborg, lögmannsstofa Jóns Ármanns, nýtti sér kaupréttinn í nóvember 2015 hafði SPB sett 50 milljónir króna inn í Teig.

Ásabyggð var í árslok 2015 í eigu félagsins Foss II slhf. Klasi fjárfesting, fjárfestingarfélags hjónanna Finns Reyrs Stefánssonar og Steinunnar Jónsdóttur og Tómasar Kristjánssonar, átti þá 50 prósent í Fossi II en Teigur 40 prósent. Forkaupsrétturinn sem Jón Ármann samdi um hafði þá tryggt honum tíu prósenta hlut sem var síðan skráður á félagið M75 ehf. Það félag er í dag skráð í helmingseigu Jóns en samkvæmt lögmanninum er hann eini raunverulegi eigandi félagsins.

„Þetta snýr alfarið að mér. Ég hafði gert þennan samning um að ég fengi nánast ekki neitt borgað nema að það yrði eitthvað úr þessu að hafa. Foss II er búið að leggja inn í þetta um 826 milljónir króna. Ég tók þátt í hlutfalli við mína hlutafjáreign áður en kom að sameiningu við Heimavelli,“ segir Jón Ármann.  

Samkvæmt svörum Tómasar og Jóns enduðu bréfin í Ásabyggð sem Teigur hélt eftir inni í eignarhaldsfélagið SPB þegar slita­stjórnin lauk störfum í júní í fyrra. Bæði eigendur Klasa fjárfestingar og Jón ákváðu þá að nýta sér forkaupsrétt og var hlutafé Foss II aukið.

„Þeir fara svo út úr þessu verkefni í fyrra og þá var ég með forkaupsrétt inni í Fossi og þá nýti ég á móti öðrum hluthöfum forkaupsrétt þegar ESÍ ákveður að fara út. Ég fékk þá einn af hverjum fimm hlutum annarra eigenda Foss og þannig endaði ég í 16 prósentum,“ segir Jón.

Hluthafi í leigurisa

Ásabyggð sameinaðist Heimavöllum rétt fyrir áramót og úr varð stærsta leigufélags landsins sem á og rekur yfir tvö þúsund leiguíbúðir. Eigendur þess stefna að skráningu félagsins á hlutabréfamarkað í lok næsta árs. M75 á eins og áður segir 4,9 prósent í Heimavöllum sem metin eru á 664 milljónir króna miðað við síðustu viðskipti með bréf leigufélagsins.

„Ég er ekki búinn að leggja jafn mikið í þetta og verðmætið stendur í í dag. Það er alveg ljóst. Aftur á móti er ekki búið að selja út úr þessu og það á eftir að koma í ljós hvernig verkefnið endar,“ segir Jón Ármann og heldur áfram:

„Ég hef alltaf borgað hverja einustu krónu á móti öðrum hluthöfum. Ég borgaði tíu milljónirnar til SPB og þeir töpuðu engu á því og ég fékk aldrei greitt fyrir vinnu mína í um fjögur ár. Ég tók sénsinn á þessu og hafði trú á verkefninu og vildi ekki skilja það eftir í rúst.“

Tómas Jónsson segir samninginn við Jón Ármann um forkaupsrétt hafa verið „mjög eðlilegan“ og ítrekar það mat að Ásabyggð hafi verið verðlaust félag þegar slitastjórnin tók við.

„Þú getur fengið það staðfest hjá öllum sem komu að þessu. Við sáum möguleika í þessu að við gætum haldið þessu á lífi í einhver ár og við komumst að því hjá þessum tveimur aðilum [eigendahópur Klasa fjárfestingar og Jón Ármann] að það væri möguleiki að fá eitthvað út úr þessu sem varð síðan raunin,“ segir Tómas.

En Jón Ármann komst í þessa stöðu af því hann sat í skilanefndinni á sínum tíma?

„Já, já. Það má segja það. En það voru fleiri í þessari skilanefnd sem voru ekki í þessari stöðu því þau höfðu ekki þessa þekkingu á rekstri Ásabyggðar og Teigs sem Jón hafði aflað sér. Það var ekki verið að semja við skilanefndarmann. Allir samningar um þetta þola dagsljósið,“ segir Tómas.

Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál






Fleiri fréttir

Sjá meira


×