Skilanefnd skellir skuldinni á starfsmenn sína 12. maí 2009 15:22 Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans. MYND/Pjetur „
Lárus Finnbogason var ekkert inni í þessu máli," segir Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans, spurður út í fyrirhugaða sölu á stofnfjárbréfum í Byr til Reykjavík Invest en Lárus Finnbogason formaður skilanefndarinnar er endurskoðandi félagsins. Salan á bréfunum var tilkynnt á stjórnarfundi hjá Byr síðastliðinn föstudag en skilanefndin ákvað á fundi í gær að ekkert yrði af henni. Lárus vék af þeim fundi vegna tengsla sinna við Reykjavík Invest að sögn Páls. Hann segir að starfsmenn nefndarinnar hafi gengið of langt. Aðspurður hvenær fundurinn var haldinn svarar Páll því að hann hafi verið haldinn síðdegis. Spurður hvenær síðdegis þá vildi Páll ekki svara því. Þegar blaðamaður spurði hvort fundurinn hafi átt sér stað fyrir fréttir Stöðvar 2 svarar Páll: „Ég staðfesti ekki hvenær þessi fundur var haldin." Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að í það minnsta tveir skilanefndarmenn hafi ekki haft hugmynd um söluna fyrr en þeir sáu frétt Stöðvar 2 í gærkvöldi. Þrátt fyrir ákvörðun skilanefndarinnar í gær þá barst Byr tilkynning á föstudag um að félagið Reykjavík Invest ættu sannarlega 2,6 prósent stofnfjárhlut í Byr og hefðu þar af leiðandi kosningarétt á aðalfundi bankans sem verður haldin á morgun. Þegar Páll er spurður hverju þetta sæti svarar hann því til að starfsmenn nefndarinnar hafi tekið ákvörðun um viðskiptin og að skilanefndin hefði átt eftir að fjalla um þau og veita samþykki sitt. „Það voru ákveðin mistök sem áttu sér stað. Þetta fór of langt." Reykjavík Invest var engu að síður með atkvæðarétt þangað til í morgun þegar Byr breytti lista sínum yfir stofnfjáreigendur eftir að skilanefndin hafði óskað eftir því. Blaðamaður spurði þá Pál hvort skilanefndin hugðist ekki taka ábyrgð á þessum mistökum svarar Páll: „Skilanefndin axlar ábyrgð með því að hafna þessu. Hún viðurkennir þar af leiðandi að þarna hafi ekki verið nægilega vel að verki staðið."
Tengdar fréttir Formaður Skilanefndar í felum Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans, hyggst ekki tjá sig við fjölmiðla um viðskipti Landsbankans með hlut í Byr sparisjóði. Sagt var frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöld að skilanefnd Landsbankans hefði selt 2,6% hlut í Byr til Reykjavík Invest, sem er lítilð fjárfestingafélag, rúmri viku fyrir 12. maí 2009 14:54 Stofnfjáreigandalistinn væntanlegur síðar í dag Listi stofnfjáreiganda var tekinn út af vefsvæði Byrs til þess að uppfæra hann. Tilefnið er það að á föstudaginn var það fært til bókar að eignarhaldsfélagið Reykjavík Invest hefði keypt 2,6 prósentu stofnfjárhlut í Byr af skilanefnd Landsbankans. 12. maí 2009 13:36 Fjármálaeftirlitið kannar stofnfjársölu Landsbankans „Það er verið að láta kanna þetta," segir Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins um fyrirhugaða sölu á stofnfjárbréfum Byr til eignarhaldsfélagsins Reykjavík Invest sem fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá í gær. 12. maí 2009 10:45 Segjast ekki hafa komið nálægt tilraun til stofnfjárkaupa „Við komum ekkert að þessari sölu," segir Rakel Gylfadóttir sem býður sig fram ásamt Arnari Bjarnasyni í stjórn Byrs. Arnar á eignarhaldsfélagið Reykjavík Invest sem hugðist kaupa stofnfjárbréf af skilanefndar Landsbankans en formaður nefndarinnar, Lárus Finnbogason, hugðist hafa milligöngu um það. 12. maí 2009 11:52 Segja söluna á BYR-hlutnum aldrei hafa átt sér stað Skilanefnd Landsbanka Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynning vegna fréttar Stöðvar 2 frá því fyrr í kvöld um sölu bankans á 2,6% stofnfjárhlut í BYR. Þar segir að sala þessi hafi verið háð samþykki Skilanefndarinnar. Afstaða Skilanefndar hafi hinsvegar ekki legið fyrir þegar tilkynningin var send Byr sparisjóði. Skilanefnd Landsbankans hafi tekið málið fyrir og salan hafi ekki hlotið samþykki nefndarinnar. 11. maí 2009 21:44 Listi yfir stofnfjáreigendur Byr hverfur Listi yfir stofnfjáreigendur Byrs var fjarlægður af heimasíðu Byrs í morgun en þar kom fram að Reykjavík Invest ætti 2,6 prósent hlut í bankanum þrátt fyrir tilkynningu skilanefndar Landsbankans í gær um að viðskiptin hefðu ekki átt sér stað. 12. maí 2009 12:35 FME skoði sölu Landsbankans á BYR-hlut Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í kvöld að ef einhver misbrestur væri á sölu Landsbankans á 2,6% hlut í BYR hljóti það að vera eitthvað sem Fjármálaeftirlitið muni skoða. Fréttastofa sagði frá því fyrr í kvöld að bankinn hefði selt umræddan hlut til félags sem heitir Reykjavík Invest. Formaður skilanefndar Landabankans, Lárus Finnbogason, er endurskoðandi félagsins. Hann vildi ekki gefa upp kaupverðið né hvernig hluturinn var fjármagnaður í samtali við fréttastofu. 11. maí 2009 19:10 Segja sölu Landsbankans á hlut í BYR spillingu Skilanefnd Landsbankans seldi 2,6% hlut í Byr til lítils fjárfestingafélags rúmri viku fyrir aðalfund. Endurskoðandi félagsins er formaður skilanefndarinnar. Salan lyktar af atkvæðasmölun og spillingu segja stofnfjáreigendur. 11. maí 2009 18:05 Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira
Formaður Skilanefndar í felum Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans, hyggst ekki tjá sig við fjölmiðla um viðskipti Landsbankans með hlut í Byr sparisjóði. Sagt var frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöld að skilanefnd Landsbankans hefði selt 2,6% hlut í Byr til Reykjavík Invest, sem er lítilð fjárfestingafélag, rúmri viku fyrir 12. maí 2009 14:54
Stofnfjáreigandalistinn væntanlegur síðar í dag Listi stofnfjáreiganda var tekinn út af vefsvæði Byrs til þess að uppfæra hann. Tilefnið er það að á föstudaginn var það fært til bókar að eignarhaldsfélagið Reykjavík Invest hefði keypt 2,6 prósentu stofnfjárhlut í Byr af skilanefnd Landsbankans. 12. maí 2009 13:36
Fjármálaeftirlitið kannar stofnfjársölu Landsbankans „Það er verið að láta kanna þetta," segir Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins um fyrirhugaða sölu á stofnfjárbréfum Byr til eignarhaldsfélagsins Reykjavík Invest sem fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá í gær. 12. maí 2009 10:45
Segjast ekki hafa komið nálægt tilraun til stofnfjárkaupa „Við komum ekkert að þessari sölu," segir Rakel Gylfadóttir sem býður sig fram ásamt Arnari Bjarnasyni í stjórn Byrs. Arnar á eignarhaldsfélagið Reykjavík Invest sem hugðist kaupa stofnfjárbréf af skilanefndar Landsbankans en formaður nefndarinnar, Lárus Finnbogason, hugðist hafa milligöngu um það. 12. maí 2009 11:52
Segja söluna á BYR-hlutnum aldrei hafa átt sér stað Skilanefnd Landsbanka Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynning vegna fréttar Stöðvar 2 frá því fyrr í kvöld um sölu bankans á 2,6% stofnfjárhlut í BYR. Þar segir að sala þessi hafi verið háð samþykki Skilanefndarinnar. Afstaða Skilanefndar hafi hinsvegar ekki legið fyrir þegar tilkynningin var send Byr sparisjóði. Skilanefnd Landsbankans hafi tekið málið fyrir og salan hafi ekki hlotið samþykki nefndarinnar. 11. maí 2009 21:44
Listi yfir stofnfjáreigendur Byr hverfur Listi yfir stofnfjáreigendur Byrs var fjarlægður af heimasíðu Byrs í morgun en þar kom fram að Reykjavík Invest ætti 2,6 prósent hlut í bankanum þrátt fyrir tilkynningu skilanefndar Landsbankans í gær um að viðskiptin hefðu ekki átt sér stað. 12. maí 2009 12:35
FME skoði sölu Landsbankans á BYR-hlut Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í kvöld að ef einhver misbrestur væri á sölu Landsbankans á 2,6% hlut í BYR hljóti það að vera eitthvað sem Fjármálaeftirlitið muni skoða. Fréttastofa sagði frá því fyrr í kvöld að bankinn hefði selt umræddan hlut til félags sem heitir Reykjavík Invest. Formaður skilanefndar Landabankans, Lárus Finnbogason, er endurskoðandi félagsins. Hann vildi ekki gefa upp kaupverðið né hvernig hluturinn var fjármagnaður í samtali við fréttastofu. 11. maí 2009 19:10
Segja sölu Landsbankans á hlut í BYR spillingu Skilanefnd Landsbankans seldi 2,6% hlut í Byr til lítils fjárfestingafélags rúmri viku fyrir aðalfund. Endurskoðandi félagsins er formaður skilanefndarinnar. Salan lyktar af atkvæðasmölun og spillingu segja stofnfjáreigendur. 11. maí 2009 18:05