Innlent

Skíðasvæðin á Siglufirði og Ísafirði opin í dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skíðasvæðið á Siglufirði fyrr á árinu.
Skíðasvæðið á Siglufirði fyrr á árinu. mynd/aðsend
Skíðasvæðið á Siglufirði verður opið í dag frá kl 11-16 en í tilkynningu frá starfsfólki skíðasvæðisins kemur fram að veðrið sé gott, það sé logn og þriggja gráðu frost.

Troðinn púðursnjór er á svæðinu og gott færi. Í dag verður einnig opið á Skíðasvæði Ísafjarðarbæjar milli kl 10-16 en einungis næst opna Sandfell og Byrjendalyftu.

Spáð er stormi seinnipartinn og ekki er vitað hversu lengi verður opið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×