Innlent

Skíðasvæði opin víða um land í dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
vísir/vilhelm
Eftir nokkuð vindasama daga undanfarið er komið logn í Hlíðarfjalli og verður opið þar milli 9 og 17, eða klukkutíma lengur en upphaflega var áætlað.



Einnig er opið í Oddsskarði í dag frá 10 til 17 en þar er logn og léttskýjað.

Síðan er opið á skíðasvæðinu í Tindastól frá 9 til 16 í dag en þar er færið mjög gott.

Ekki hefur veðrið leikið við skíðamenn í Bláfjöllum um páskana en í morgun fór að blása upp.  Ekki er hægt að keyra stólalyftur, en ætlunin er að keyra diska lyfturnar eins og mögulegt er. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×