Sport

Skíðafólk ársins valið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Skíðafólk ársins 2016.
Skíðafólk ársins 2016. mynd/skíðasamband íslands
Skíðasamband Íslands hefur valið skíðamann og -konu ársins 2016.

Snorri Einarsson varð fyrir valinu í karlaflokki og María Guðmundsdóttir í kvennaflokki.

Snorri Einarsson er fæddur árið 1986 og hefur keppt um árabil undir norsku ríkisfangi. Hann er búsettur í Noregi en faðir hans er íslenskur. Í sumar skipti hann um ríkisfang og keppir í fyrsta skipti fyrir Íslands hönd.

Þó Snorri hafi aðeins keppt á sex mótum fyrir Íslands hönd eru yfirburðir hans slíkir í skíðagöngu á Íslandi að ekki er hægt að horfa fram hjá honum í vali á skíðamanni ársins. Bestum árangri náði Snorri í 15 km göngu með frjálsri aðferð í Olos í Finnlandi á alþjóðlegu FIS móti í nóvember 2016.

Þar hafnaði hann í 2. sæti og fékk fyrir vikið 39,24 FIS stig. Á heimslista FIS er Snorri í 174.sæti á lista yfir lengri vegalendir. Snorri hefur nú þegar náð lágmörkum fyrir HM 2017 og ÓL 2018.

María stundar nám við háskólann í Anchorage í Bandaríkjunum og keppir fyrir skíðalið skólans í háskóladeildinni. María hóf árið af miklum krafi þegar hún gerði sér lítið fyrir og vann mót í Snowbird í Utah ríki þann 7. janúar. Fjórum dögum síðar gerði hún virkilega vel að ná 3. sæti á sterku háskólamóti og fékk fyrir það 18,50 FIS stig, en þetta var í fyrsta skipti sem hún náði að skíða á undir 20 punktum.

Með góðum árangri yfir veturinn tryggði María sér þátttökurétt á lokamóti háskólamótaraðarinnar en einungis 32 bestu stelpurnar frá öllum háskólum Bandaríkjanna fá þátttökurétt á mótinu. Þar stóð hún sig mjög vel og endaði í 12. sæti í stórsvigi og 18. sæti í svigi.

María keppti einnig í lokamóti Norður-Ameríku bikarsins og gerði sér lítið fyrir og lenti í 4. sæti og fékk fyrir það 12,58 FIS stig sem eru hennar lægstu punktar á ferlinum til þessa. Þess má get að Norður-Ameríku bikar (álfukeppni) er næst sterkasta mótaröð í heimi á eftir heimsbikar.

María kom svo heim og keppti á Skíðamóti Íslands og stóð sig með ágætum og varð í öðru sæti bæði í svigi og stórsvigi.

Árangur Maríu á árinu skilaði henni úr 209. sæti á heimslistanum í svigi og niður í 90. sæti með 15.54 FIS punkta. Er þetta í fyrsta skipti í fjögur ár sem Ísland á skíðamann í topp 100 á heimslista eða síðan Björgvin Björgvinsson var á sínu síðasta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×