Lífið

Skemmtilegir rólóar og ítalski ísinn góður

Óðinn og Sævar eru hér fyrir framan risa osta á Ítalíu.
Óðinn og Sævar eru hér fyrir framan risa osta á Ítalíu.
Bræðurnir Óðinn Styrkár og Sævar Stormur Þórhallsynir fluttu nýlega til Mílanó á Ítalíu ásamt foreldrum sínum og litlu systur. Þeir kunna vel við ítalska lífið en sakna helst að fá SS-pylsur og auðvitað vina sinna á Íslandi.

Nafn og aldur? Óðinn Styrkár Þórhallsson verður 8 ára í ágúst. Sævar Stormur Þórhallsson er 5 ára.

Hvernig var að flytja til útlanda?

Ó: Pínu öðruvísi því við gátum ekki strax talað tungumálið.

S: Gaman.



Voruð þið fljótir að læra ítölsku?


Ó: Já, það tók svona tvo mánuði, núna skil ég allt.

S: Í leikskólanum mínum tala kennararnir ítölsku og ensku.

Hvernig finnst ykkur að búa á Ítalíu?

Ó:
Eiginlega mjög gaman.

S: Stundum gaman, stundum ekki gaman. Stundum skil ég ekki alveg allt – en oftast.

Hvað er skemmtilegast?

Ó: Veðrið er gott og flestur matur er mjög góður og ísinn líka.

S: Rólóarnir eru mjög skemmtilegir og ég fæ mjög oft gelato.

Saknið þið Íslands?

Ó: Jáááá stundum, ég sakna Matthildar og íslensku vina minna. En samt á ég fullt af ítölskum vinum líka. Og ég sakna líka SS pulsanna.

S: Já, ég sakna Viktors og vina minna. Besti vinur minn á leikskólanum á Ítalíu heitir Joseph. Ég sakna líka Seltjarnar­ness stundum.

Hvað ætlið þið að gera í sumar?

Ó:
Fara til Íslands í júlí í smá heimsókn með pabba, og þegar við erum komnir aftur til Mílanó förum við í ferðalag um Ítalíu, þar verður hús með sundlaug. Þá verður mamma í fríi í skólanum.

S: Það er búið að vera sumar svolítið lengi hér, ég ætla samt líka til Íslands og fara í Neslaugina og borða SS pulsur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×