Lífið

Skemmtilegasta fjölskyldan í Springfield er 27 ára

Meðlimir Simpsonsfjölskyldunnar
Meðlimir Simpsonsfjölskyldunnar
Hin ástsæla Simpson's fjölskylda frá Springfield í Bandaríkjunum heldur upp á afmælið sitt í dag, en teiknimyndaþættirnir vinsælu fóru fyrst í loftið þann 19.apríl árið 1987.

Flest íslensk heimili þekkja fjölskylduna, en hún  samanstendur af bráðfyndnum karakterum, hinum seinheppna heimilisföður Homer, hinni þolinmóðu Marge, stríðnispúkanum Bart, gáfuðu stelpunni Lisu og kornabarninu Maggie.

Íbúar Springfield eru svo margfalt fleiri og karakterarnir hver öðrum skrautlegri.  

Þættirnir hafa verið sýndir á Íslandi frá árinu 1991 og er Stöð 2 enn með þættina í sýningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×