Menning

Skemmtilegast að sauma

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Erla Björk spilaði á hörpu í athöfn í Listasafni Reykjavíkur í gær.
Erla Björk spilaði á hörpu í athöfn í Listasafni Reykjavíkur í gær. Vísir/Stefán
„Það sem mér finnst skemmtilegast er að sauma út – sauma myndina. Svo finnst mér líka gaman að dansa og spila á hljóðfæri,“ segir Erla Björk Sigmundsdóttir sem hefur verið valin listamaður Listar án landamæra.

Hún spann á hörpu við athöfn í Listasafni Reykjavíkur í gær þar sem nýtt fyrirkomulag Listar án landamæra var kynnt.

Það felur í sér að í stað þess að vera hátíð á einum tímapunkti ár hvert, mun List án landamæra verða sýnileg allt árið með þátttöku í Vetrarnótt, Hönnunarmars, Menningarnótt, bæjarhátíðum um land allt og fleiri menningarviðburðum. Einnig var kynnt ný heimasíða sem er við það að verða tilbúin, www.listin.is.

Erla Björk hefur átt heima á Sólheimum í Grímsnesi frá árinu 1993 og tekið þar virkan þátt í öllu félagslífi. Hefur sótt námskeið hjá Fjölmennt á Selfossi og stundað tónlistarnám á Sólheimum, meðal annars á hörpu. Hún hefur líka tekið þátt í árlegum uppfærslum Leikfélags Sólheima og komið fram með því í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu og í Madrid á Spáni og henni þykir gaman að ferðast.

Mest vinnur Erla Björk í vefstofu, kertagerð og jurtastofu Sólheima. Hún saumar frjálst út eða eftir eigin teikningum og hefur sýnt útsaumsverk sín víða, til dæmis bæði á Safnasafninu á Svalbarðsströnd og í Norræna húsinu á síðasta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×