Lífið

Skemmtilega innréttuð íbúð vekur athygli

Baldvin Þormóðsson skrifar
Gólfefnið í stofunni setur mikinn svip á eignina.
Gólfefnið í stofunni setur mikinn svip á eignina. mynd/einkasafn
Íbúð sem skráð var á fasteignavef Vísis í síðustu viku hefur vakið þónokkra athygli fyrir nýstárlega innanhússhönnun.

Hönnuðurinn virðist hafa sótt innblástur sinn frá ýmsum tímabilum mannkynssögunnar og má jafnvel greina hefðbundna asíska hönnun í bland við íslensku landslagsmyndirnar.

Byggð hafa verið eikarhandföng yfir baðkarið sem að, ásamt furunni á gólfinu, veita baðherberginu glæsilegt yfirbragð. 

Gólfefnið í stofunni er einstakt og setur mikinn svip á eignina ásamt niðurlímdri rauðeik sem finna má í gólfi eldhússins og svefnherbergjanna.

Myndir af eigninni má sjá hér að neðan en íbúðina sjálfa er hægt að skoða á fasteignavef Vísis.

Baðherbergið er glæsilegt.mynd/einkasafn
Myndarlegur bar í horninu.mynd/einkasafn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×