Innlent

Skemmtiferðaskip á hverjum degi í Reykjavík

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þetta glæsilega skip stóð svona líka glæsilega framan við Viðey í gær.
Þetta glæsilega skip stóð svona líka glæsilega framan við Viðey í gær. Vísir/Vilhelm
Reiknað er með yfir eitt hundrað skemmtiferðaskipum til Íslands í sumar. Langflest koma nú í júlí og ágúst og segir Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna, stöðuna þannig að nánast komi nýtt skip til hafnar á degi hverjum.

Greint var frá því á Vísi í gær að fimm skemmtiferðaskip væru í Reykjavíkurhöfn. Aldrei hefðu fleiri skip af þeirri tegund verið á sama tíma í höfninni. Eitt skipanna var við Korngarð, tvö við Skarfabakka, eitt við Miðbakka og eitt við Faxagarð.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á ferðinni í Reykjavíkurhöfn í gær og náði myndunum skemmtilegu hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×