Lífið

Skemmta sér vel og fallega

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Undirbúningur fyrir hátíðina var í fullum gangi þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði en á útisvæðinu verður fjölbreytt dagskrá um helgina.
Undirbúningur fyrir hátíðina var í fullum gangi þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði en á útisvæðinu verður fjölbreytt dagskrá um helgina. Vísir/Ernir
Tónlistarhátíðin Innipúkinn er haldin í fjórtánda sinn í ár, líkt og í fyrra verður sérstakt útisvæði þar sem margt verður um að vera, meðal annars fatamarkaður, ljóðalestur, Pub-Quiz, fjöldi matarvagna og plötusnúðar þeyta skífum.

„Þetta var frábært í fyrra og þá var útisvæðapælingin tekin upp á hærra plan og við höldum því áfram. Það er auðvitað þversögn út af fyrir sig að vera með útisvæði á Innipúkanum. En það eru einhverjir sem bara geta ekki án grass verið og verða að finna lyktina af nýslegnu grasi yfir verslunarmannahelgina og við erum að þjónusta þennan hóp,“ segir Ásgeir Guðmundsson, einn af skipuleggjendum hátíðarinnar í ár, glaður í bragði.

Fjöldi tónlistarmanna kemur fram um helgina, meðal annars Gísli Pálmi, Sturla Atlas og Steed Lord í kvöld og á morgun Sóley, Mammút og Teitur Magnússon auk fleiri.

„Við erum mjög spenntir, þetta verður stórkostleg helgi. Innipúkinn stendur alltaf fyrir sínu og hefur verið í stöðugri uppbyggingu í fjórtán ár. Fólk skemmtir sér vel og fallega á Innipúkanum. Þetta er fullkomin afsökun til þess að segja nei við hræðilegum hugmyndum um að fara út á land í útilegu,“ segir Ásgeir og hlær.

Annað kvöld verður hátíðinni lokað með balli. „Hljómsveitin Babies lokar helginni með Innipúkaballinu í ár og heldur stemningunni uppi langt fram á kvöld. Þau geta spilað endalaust, öll þessi helstu lög og það er engin leið að hreyfa sig ekki og brosa ekki þegar þau eru með ball,“ segir Ásgeir og bætir við að hljómsveitin hafi verið við stífar æfingar undanfarið og spili fullt af nýjum lögum.

Ásgeir segir skipuleggjendur stilla miðaverði í hóf eins og hægt er.

„Við erum með góða bakhjarla, Símann, Vífilfell og GoMobile sem aðstoða okkur. Við reynum að fá aðstoð og láta listamennina fá sem allra mest. Hagnaður hátíðarinnar splittast jafnt á öll böndin, alveg sama hvað þú ert stórt nafn. Það er ekkert annað en tónlistin í forgrunni.“

Nánari dagskrá er hægt að nálgast á Facebook-síðu Innipúkans og miða er hægt að kaupa á vefsíðunni Midi.is en hátíðarpassinn er á 6.990 krónur og miðið á stök kvöld á 3.990 en Innipúkinn verður haldinn á skemmtistöðunum Húrra og Gauknum við Tryggvagötu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×