Erlent

Skaut Brown tólf sinnum í sjálfsvörn

Birta Björnsdóttir skrifar
Ófriðarbálið logar í smábænum Ferguson í Bandaríkjunum eftir að ljóst þykir að lögreglumaður sem skaut 18 ára blökkupilt til bana í sumar verður ekki látinn svara til saka fyrir verknaðinn. 

Í gögnum málsins kemur meðal annars fram að lögreglumaðurinn, Darren Wilson, heldur því fram að hinn óvopnaði Michael Brown hafi ógnað sér og reynt að ná af sér byssunni. Wilson ber því við sjálfsvörn en hann skaut hinn sautján ára Brown tólf sinnum.

Þykir mörgum málið lýsandi dæmi fyrir það kynþáttamisrétti sem enn ríkir í Bandaríkjunum, en í bænum Fergusson eru rúmlega 90% lögreglumanna hvítir þrátt fyrir að tæplega 70% íbúa bæjarins séu svartir.

Það er mikilvægt að hafa í huga að einstaklingarnir í kviðdómnum eru eina fólkið sem hefur heyrt vitnisburð allra sem að málinu koma auk þess að hafa grandskoðað öll sönnunargögn í málinu. Þeirra niðurstaða er að ekki sé tilefni til að leggja gram ákæru gegn lögreglumanninum Wilson," tilkynnti saksóknarinn Bob McCulloch í nótt.

Viðbrögðin við niðurstöðu kviðdómsins létu ekki á sér standa og reiðir mótmælendur kveiktu í byggingum og bílum og skutu úr byssum.

Forseti Bandaríkjanna lagðist á árar með fjölskyldu Brown, sem hvatti til friðsamlegra mótmæla þeirra sem ósáttir eru við úrskurðinn. Líklegt þykir að ófriðarbálið komi til með að loga áfram næstu daga.

Og það var ekki bara mótmælt í Ferguson, víðsvegar um Bandaríkin streymdi fólk út á götur í kjölfar úrskurðarins.

„Hann var á mínum aldri, ég gæti því átt á hættu að vera skotinn til bana án þess að það hefði nokkrar afleiðingar fyrir þann sem gerði það," sagði Haki Daniels, íbúi í Los Angeles.

Þá fóru einnig fram mótmæli í Cleveland þar sem lögreglumaður skaut hinn 12 ára Tamir Rice til bana um helgina. Rice var skotinn á þriggja metra færi á leikvelli eftir að hafa veifað dótabyssu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×