Það eina prósent fjölskyldna sem var með hæstar tekjur árið 2010 greiddi 138,3% hærri skatta af tekjum það ár en á góðærisárinu 2007. Þetta kemur fram í nýjasta hefti Tíundar.
Það að þeir tekjuhæstu í samfélaginu séu að bera auknar skattbyrðar er í raun í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um jöfnun skattbyrða, en nýir skattar eins og auðlegðarskattur og ný skattþrep voru leiðir sem meðal annars voru farnar til að ná þessu markmiði.
Þetta kemur fram í umfjöllun Páls Kolbeins, hagfræðings hjá embætti Ríkisskattstjóra, í nýjasta hefti Tíundar, tímarits embættisins. Þróunin frá 2009 hefur verið sú að færri greiða skatta en áður og flestir greiða minni skatta en tekjuhæstu fjölskyldurnar bera meiri skatta af minni tekjum nú en fyrir nokkrum árum. Ráðstöfunartekjur hafa almennt minnkað en á síðasta ári var nær helmingur skatta lagður á 10% fjölskyldna, að því er fram kemur í greininni í Tíund en um þessi mál er fjallaði í Morgunblaðinu í dag.