Innlent

Skattalækkanir í nýju fjárlagafrumvarpi

Heimir Már Pétursson skrifar
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokssformaður Sjálfstæðisflokksins.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokssformaður Sjálfstæðisflokksins. vísir/gva
Reiknað er með skattalækkunum í fjárlagafrumvarpi sem Bjarni Benediktsson kynnti fyrir þingflokki Sjálfstæðismanna í gær. Þingflokksformaður flokksins segir náttúruverndarlög verða eitt af stóru málum næsta vetrar. Þá njóti inninríkisráðherra óskipts stuðnings þingflokksins þótt lekamálið sé ráðherranum og flokknum öllum erfitt.

Þingflokkur Sjálfstæðismanna fundaði í allan gærdag og í morgun í Vestmannaeyjum til að fara yfir stóru málin fyrir komandi haustþing sem sett verður hinn 9. september. Ragnheiður Ríkharðsdóttir þingflokksformaður segir þingflokkinn hafa afgreitt fjárlagafrumvarpið fyrir sitt leyti, rætt sjávarútvegsmál, málefni Íbúðalánasjóðs og landbúnaðarmál.

Þá eigi eftir að afgreiða náttúruverndarlög og skoða þurfi rammaáætlun.

„Mestu máli skiptir að vera áfram með hallalaus fjárlög og aðhald í ríkisbúskapnum. Það er það sem skiptir öllu máli,“ segir Ragnheiður.

Að því leiti sé svipaður tónn í fjárlagafrumvarpinu og var á síðasta ári. Ráðuneyti þurfi áfram að hagræða hjá sér en ekki sé farið fram á beinan niðurskurð. Fjárlagafrumvarpið feli í sér fyrirheit um skattalækkanir meðal annars með breytingum á virðisaukaskattskerfinu, en þar hafa verið deildar meiningar á milli stjórnarflokkanna.

Stendur enn þá til að hækka neðra þrepið í virðisaukaskatti á matvæli?

„Menn eru að reyna að ná sátt um það með hvaða hætti við breytum virðisaukaskattskerfinu og fækkum undanþágum. Því verkefni verður einfaldlega lokið fyrir þann tíma sem því þarf að vera lokið,“ segir Ragnheiður.

Þá sé til umræðu að lækka tekjuskattinn enn frekar eins og Sjálfstæðismenn hafi boðað.

Málefni innanríkisráðherra komu einnig til umræðu á þingflokksfundinum.

„Innanríkisráðherra gerði okkur grein fyrir stöðu mála eins og ráðherranum er unnt. Það voru umræður og fyrirspurnir þar að lútandi. Eins og allir vita þá er þetta grafalvarlegt mál og engum auðvelt. Hvorki þeim sem verið hefur ákærður, allra síst, né innanríkisráðherra og Sjálfstæðisflokknum í heild sinni,“ segir Ragnheiður.

Er þingflokkurinn einhuga að baki ráðherra eða eru skiptar skoðanir innan þingflokksins?

„Ráðherrann hefur stuðning þingflokksins. Hún situr í umboði þingflokksins og hefur stuðning þingflokksins,“ segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×