Innlent

Skartgriparánið í Firði upplýst

Atli Ísleifsson skrifar
Verðmæti þess sem stolið var hleypur á milljónum króna.
Verðmæti þess sem stolið var hleypur á milljónum króna.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst innbrot í skartgripaverslun í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði í byrjun síðasta mánaðar.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að karlmaður á fertugsaldri hafi játað á sig verknaðinn.

„Verðmæti þess sem stolið var hleypur á milljónum króna, en nú er unnið að því að endurheimta hina stolnu muni. Talið er að hluti þeirra hafi verið fluttur úr landi.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×