Skartgripaafleiða

Fréttablaðið Fastir pennar 15. febrúar 2012 06:00
Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is
Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is
Þórður Snær Júlíusson skrifar:
Hinn 6. október 2008 ákvað Seðlabanki Íslands að lána Kaupþingi 500 milljónir evra, um 80 milljarða króna. Lánið var upphaflega til fjögurra daga og sem veð voru tekin öll hlutabréf Kaupþings í danska bankanum FIH. Í bók Árna Mathiesen „Frá bankahruni til byltingar" segir að Seðlabankinn hafi „látið Kaupþing hafa allan gjaldeyrisforðann sem þeir voru með hérna heima þannig að það voru engir peningar eftir í Seðlabankanum". Sigurður Einarsson, þáverandi stjórnarformaður Kaupþings, sagði í Kastljósinu sama dag og lánið var veitt að hann „réttlæti það að við höfum fengið þessa fyrirgreiðslu vegna þess að þetta er mjög öruggt lán. Vegna þess að við stöndum mjög vel og Seðlabankinn er öruggur um að fá þessa peninga til baka […] Ég get sagt það kinnroðalaust". Davíð Oddsson, þáverandi formaður bankastjórnar Seðlabankans, sagði daginn eftir í sama þætti að ef lánið fengist ekki greitt þá myndi „Seðlabankinn eignast mjög góðan banka í Danmörku, FIH". Kaupþing féll þremur dögum síðar. Síðar hefur komið í ljós að FIH bankinn var ekki jafnmikill klettur í hafinu og menn vildu meina. Bankinn þurfti að fá fyrirgreiðslu upp á tæpa 1.100 milljarða króna frá danska ríkinu sumarið 2009.

Í september 2010 seldi Seðlabanki Íslands FIH, m.a. vegna þess að hann taldi raunverulega hættu á að FIH yrði tekinn yfir af dönskum stjórnvöldum. Við það hefði veð hans í bankanum orðið verðlaust. FIH var, í orði, seldur fyrir 109 milljarða króna. Það virtist því ætla að verða góður hagnaður af þessum viðskiptum. Á borði fékk Seðlabankinn hins vegar um 41 milljarð króna staðgreiddan og afganginn, um 68 milljarða króna, lánaði Seðlabankinn nýjum eigendum fram til loka ársins 2014. Seljendalánið ber enga vexti. Auk þess var samþykkt að allar afskriftir vegna eigna sem voru á efnahagsreikningi FIH þegar bankinn var seldur myndu dragast frá láninu. Að lokum var ákvæði um að ef rúmlega helmingshlutur sem FIH á óbeint í skartgripaframleiðandanum Pandoru myndi aukast að verðgildi rynni það til Seðlabankans.

Síðan þessi kaupsamningur var gerður hefur FIH afskrifað um 48 milljarða króna, eða um 70% af seljendaláninu. Talið er líklegt að afskriftunum sé ekki að fullu lokið. Í ljós kom að útlán bankans voru fjarri því að vera jafntrygg og af var látið. Það á sérstaklega við um lán til félaga í fasteignarekstri eða byggingariðnaði. Berlingske Tidende sagði í fyrra að FIH hefði verið peningabaukur fyrir áhættufjárfesta í þessum geirum, sem gengu undir nafninu Milljarðamæringaklúbburinn, á meðan bankinn var í eigu Kaupþings. Flestallir meðlimir klúbbsins eru gjaldþrota í dag. Seðlabankinn reiknaði ætlaðan söluhagnað vegna hlutabréfa FIH í Pandoru inn í tilkynnt kaupverð þegar hann seldi bankann. Í því reikningsdæmi var áætlað virði bréfanna við sölu um 26 milljarðar króna. Það er nú um sjö milljarðar króna.

Í dag er því tugmilljarða króna tapstaða á aðkomu Seðlabankans að FIH. Það eina sem gæti lagað þá tapstöðu eitthvað er að bréf í skartgripaframleiðanda hækki gífurlega fram til loka árs 2014. Seðlabankinn á í raun afleiðu sem sveiflast til og frá eftir því hvernig Pandoru gengur að selja skartgripi. Það má vel velta fyrir sér hvort það sé ásættanlegt veðmál fyrir Seðlabanka að taka þátt í.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Bankablús

Viðbúið var að rekið yrði upp margraddað ramakvein þegar Landsbankinn tilkynnti um uppsagn...  

Meira
Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Á Heimaey betur heima í ríkissjóði?

Ný Heimaey í eigu Ísfélagsins kom fyrir skömmu til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Margir hr...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Skartgripaafleiða