Enski boltinn

Skar út graskersmyndir af stjórum Manchester-liðanna

McMinnis er greinilega listamaður.
McMinnis er greinilega listamaður.
Það er mikil spenna fyrir Manchester-slagnum í enska boltanum um helgina og stuðningsmaður Man. Utd hitar upp fyrir leikinn á afar sérstakan hátt.

Simon McMinnis eyddi rúmum sólarhring í að skera út andlitsmyndir stjóra Manchester-liðanna í grasker þar sem það er nú hrekkjavaka um helgina.

„Ég elska þennan tíma ársins og hef í gegnum tíðina skorið út alls konar myndir á grasker. Ég vona að myndin mín af Van Gaal færi honum gæfu," sagði McMinnis en það verður að viðurkennast að þetta er ansi smekklega gert hjá honum.

Leikurinn fer fram klukkan 13.30 á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×