Innlent

Skar konu á handlegg

Bjarki Ármannsson skrifar
Lögregla handtók í nótt einstakling sem réðst á konu í Austurborg Reykjavíkur.
Lögregla handtók í nótt einstakling sem réðst á konu í Austurborg Reykjavíkur. Vísir/GVA
Lögregla handtók í nótt árásarmann sem skar konu á handlegg í Austurborg Reykjavíkur. Árásarmaðurinn hefur verið vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls.

Að því er segir í skýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um árásina um klukkan tvö í nótt. Konan sem skorin var á handlegg var flutt á slysadeild til aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×