Lífið

Skar af sér liminn og sér ekki eftir neinu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hin limvana Andrew Johnson er brattur þrátt fyrir niðurskurðinn.
Hin limvana Andrew Johnson er brattur þrátt fyrir niðurskurðinn. Vísir/EPA
Rapparinn Andrew Johnson, sem gengur undir listamannsnafninu Chris Bearer, segist enn geta stundað kynmök þrátt fyrir að hafa sargað af sér getnaðarliminn í eiturlyfjavímu í apríl á síðasta ári.

Johnson komst í heimsfréttirnar í fyrra þegar fregnir bárust af sjálfsmorðstilraun hans í norðurhluta Hollywood. Hafði hann þá fleygt sér fram af svölum, skömmu eftir að hann hafði skorið af sér litla Johnson undir áhrifum sterkra vímuefna.

Rapparinn, sem gerði garðinn frægan með rappgrúppunni Northstar sem uppgötvuð af meðlimum sveitarinnar Wu-Tang Clan, kom nýlega fram í viðtali við VladTV, sem sjá má hér að neðan.

Þar hafnar hann því meðal annars að um sjálfsmorðstilraun hafi verið að ræða en áður hefur komið fram að rapparinn, einnig þekktur undir nafninu Chris Bearer, hafi glímt við þunglyndi um árabil eftir að barnsmóðir hans fékk nálgunarbann á hann. Hann segist hafa horn í síðu kvenna sem ekki leyfa körlum að umgangast börn sín og að nálgunarbannið hafi lagst svo illa í hann að hann skar af sér hluta sprellanns, í mikilli vímu. Í viðtalinu lýsir hann einnig lyfjakokteilnum sm hann innbyrti, nánast rænulaus af svefnleysi daginn sem hann féll fram af svölunum en hann samanstóð af PCP, methamfetamíni, e-tölfunum og áfengi. Þrátt fyrir alla þessa þrautagöngu segist rapparinn ekki sjá eftir neinu. Þvert á móti hafi hann skráð sig á spjöld sögunnar. „Ég gæti hafa gert stærstu mistök sem nokkur maður hefur gert. En ég er stoltur af því,“ segir hann. Þá segir hann að dömurnar þurfi ekki að örvænta – hann geti sofið hjá - fyrir að læknum hafi ekki tekst að festa liminn á aftur. Af því má ætla að hann hafi skorið framan af limnum. Hann gefur alltént í skyn í viðtalinu að hann hafi verið vel vaxinn niður. Hann geti því enn stundað kynmök.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×