Skoðun

Skapandi greinar - hugrekki eða heimska?

Birna Hafstein skrifar
Nú, í aðdraganda kosninga, er ég oft spurð af kollegum mínum í skapandi greinum hvað Viðreisn ætli að gera fyrir listir og menningu? Ég tek þessari spurningu fagnandi því við hjá Viðreisn ætlum ekki að láta okkar eftir liggja þegar kemur að menningu og listum eða, í stærra samhengi, að skapandi greinum. Nýlega sagði ég við nokkra félaga mína í leikhúsinu að við hjá Viðreisn ætluðum að sýna það hugrekki í verki að standa með skapandi greinum.

Eftir á fannst mér skrítið að nota orðið hugrekki í þessu samhengi. Er það ekki öllu fremur bara heimska að standa ekki með skapandi greinum?

Skapandi greinar eru hluti af atvinnulífinu! Áhrif þeirra eru ótvíræð í samfélaginu. Sköpun er samofin öllu mannlegu lífi. Fyrir utan þau hugvíkkandi áhrif sem menning og listir hafa á okkur, þá eru hagræn áhrif skapandi greina orðin slík að það kann að koma einhverjum á óvart. Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar eru um 20 þúsund störf innan skapandi greina. 20 þúsund! Það er svipaður fjöldi og starfar í landbúnaði og sjávarútvegi samanlagt og ekki langt frá þeim fjölda sem starfar við ferðaþjónustu sem er orðin ein stærsta atvinnugrein landsins.

Menning og listir eru líka ein helsta ástæða fyrir komu erlendra ferðamanna hingað til lands á eftir náttúrunni. Gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu voru um 370 milljarðar á síðasta ári og þar skiptir menningartengd starfsemi sköpum. Það stefnir í að árið 2017 verði tekjurnar hærri en af sjávarútvegi og stóriðju til samans.

Við búum í samfélagi þar sem ríkið styður við atvinnulífið. Milljarðar af ríkisfé fara t.d. í rannsóknir á sjávarútvegi, ferðaþjónustu og landbúnaði eins og öllum ætti að vera ljóst eftir umfjöllun um nýsamþykktan búvörusamning. Skapandi greinar eru ekki undanskildar í þessum stuðningi ríkisins og er þetta fjárfesting ríkisins í blómstrandi atvinnulífi.

Á undanförnum árum hefur málefnum skapandi greina verið dreift á of mörg ráðuneyti og heildstæð stefna ekki til staðar. Mín skoðun er sú að málefni skapandi greina ættu að vera sameinuð undir einn hatt og vera í sífelldri endurskoðun. Það þarf að sjá til þess að til staðar sé skýr langtímastefna í þessum málum og innviðir styrktir. Skapandi greinar eru einn helsti vaxtabroddur nýsköpunar og ein helsta vaxtargrein atvinnuveganna til framtíðar. Ég vil standa vörð um skapandi greinar, styrkja þær og efla bæði á hagrænum forsendum en ekki síður fyrir okkur öll, fólkið sem byggjum þetta land. Þetta er pólitísk afstaða.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×