Lífið

Skapa raunveruleg verðmæti úr engu

Baldvin Þormóðsson skrifar
Nemendurnir hafa stórar hugmyndir um fiskeldi.
Nemendurnir hafa stórar hugmyndir um fiskeldi. vísir/stefán
„Verkefnið snýst um að fullnýta bleikjuna en um 43 prósentum fisksins er fargað í dag,“ segir Halldóra Ársælsdóttir en hún vinnur að áhugaverðu verkefni í Háskólanum í Reykjavík ásamt systur sinni Guðbjörgu Erlu Ársælsdóttur, Hrannari Guðmundssyni, Bergi Ástráðssyni, Snorra Níelssyni og Birki Helgasyni.

„Við þekktum aðeins inn á fiskeldi og höfum séð vannýtingu á bleikjunni,“ segir Halldóra en systurnar sáu sér þá tækifæri í vannýtingunni. „Við fáum sem sagt afskornu dálkana, hryggjarsúlu bleikjunnar, tökum kjötið og búum til bleikju-paté úr því,“ segir Halldóra.

Hópurinn er strax kominn af stað með verkefnið og hefur nú þegar framleitt nokkrar frumgerðir patésins. Hönnuðurinn Helga Dögg Ólafsdóttir hannaði umbúðirnar.

„Núna erum við að skoða réttu hráefnin og hvert besta framleiðsluferlið sé upp á endingartíma og þvíumlíkt,“ segir Guðbjörg Erla en stefnt er að því að koma patéinu á almennan markað eftir átta mánuði ef allt gengur eftir. „Við erum að vinna uppskriftina með kokkum og matvælafræðingi og erum búin að finna skemmtilega leið til þess að reykja bleikjuna. Við viljum að þetta sé hágæðavara,“ bætir Halldóra við.

Læra að vera frumkvöðlar

Verkefnið er hluti af þverfaglegum nýsköpunaráfanga í HR en sjálf lærir Halldóra sálfræði, Guðbjörg viðskiptafræði og strákarnir fjórir verkfræði en einn þeirra, Birkir Helgason, hafði kynnt sér svipaða starfsemi í Noregi. 

„Það eru dæmi um svona framleiðslu í Noregi þar sem menn vinna mikið með lax en þeir eru komnir á það stig að aukaafurðirnar eru farnar að skila meiri tekjum en flökin sem upphaflega voru seld,“ segir Birkir. 

„Draumurinn er að geta fullnýtt fiskinn eftir tíu eða tuttugu ár,“ segir Guðbjörg. „Þá væri kannski hægt að nýta hann í framleiðslu snyrtivara eða olía. Það er hægt að skapa fullt af raunverulegum verðmætum úr þessu hráefni sem er ekki nýtt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×