Körfubolti

Skammaði leikmann Boston fyrir að vera á fæðingardeildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Al Horford er orðinn tveggja barna faðir.
Al Horford er orðinn tveggja barna faðir. vísir/getty
Al Horford, leikmaður Boston Celtics, varð faðir í annað sinn á sunnudag og fékk frí í leik liðsins daginn eftir. Þekktur fjölmiðlamaður í Boston hafði engan skilning á því.

„Ég er mjög ósáttur við Al Horford. Þessi 30 milljón dollara maður var ekki með í leiknum gegn Miami því hann var að eignast barn. Í gær. Barnið fæddist í Atlanta og leikurinn var í Miami,“ sagði fjölmiðlamaðurinn Michael Felger ósáttur.

„Þegar menn eru á svona launum er ekki mikið mál að taka einkaþotu. Hann hefði getað flogið í leikinn og farið til baka. Ég er viss um að það var fjöldi fólks að hugsa um eiginkonu hans. Ég hefði alltaf farið og spilað. Ég er hrifinn af mönnum sem fórna öllu fyrir liðið.“

Margir eru stórhneykslaðir á þessum orðum fjölmiðlamannsins. Tímabilið er nýhafið. Það eru spilaðir 82 leikir á tímabili, Miami getur ekki neitt og Horford fékk einn dag í frí. Boston vann svo auðvitað leikinn án Horford.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×