Sport

Skáluðu eftir blóðugt stríð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Heiðursmenn skála.
Heiðursmenn skála.
UFC-bardagi Alexander Gustafsson og Jan Blachowicz í Hamburg um síðustu helgi var mikið stríð í þrjár lotur.

Svíinn Gustafsson hafði þó betur hjá öllum dómurum og vann sanngjarnan sigur í rosalegum bardaga. Hér á síðu MMAfrétta má lesa um öll úrslit kvöldsins.

Báðir þessir kappar eru miklir heiðursmenn og það sönnuðu þeir heldur betur eftir bardagann.

Þrátt fyrir að vera bólgnir og bláir þá gáfu þeir sér tíma fyrir einn bjór eftir bardagann. Þeir skáluðu síðan og töluðu vel um hvorn annan.

Sannarlega framkoma sem er til mikillar eftirbreytni.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×