Körfubolti

Skallagrímur með sigur á Njarðvík þrátt fyrir enn einn stórleikinn hjá Carmen

Stefán Árni Pálsson skrifar
Borgnesingar sitja í efsta sætinu.
Borgnesingar sitja í efsta sætinu. vísir/anton
Skallagrímur vann fínan útisigur á Njarðvík í Dominos-deild kvenna en leikurinn fór 73-60 og var leikinn í Ljónagryfjunni í suður með sjó.

Staðan í hálfleik var 38-26 fyrir Skallagrímskonur og var sigur þeirra aldrei í hættu. Tavelyn Tillman var að vanda góð í liði Skallagríms en hún skoraði 22 stig, tók fimm fráköst og gaf 6 stoðsendingar.

Carmen Tyson-Thomas, leikmaður Njarðvíkur, fór eins og vanalega gjörsamlega á kostum í leiknum.

Hún skoraði 35 stig, og tók 26 fráköst. Thomas gaf aftur á móti aðeins eina stoðsendingu og fer í raun allt spil Njarðvíkinga í gegnum hana, og engan annan. Skallagrímur er í efsta sæti deildarinnar með 32 stig en Njarðvíkingar í því sjötta með 14 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×