Golf

Skalf á beinunum í fyrra en ekkert stressuð núna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valdís Þóra mun freista þess annað árið í röð að vinna sér þátttökurétt á Evrópumótaröði kvenna í golfi.
Valdís Þóra mun freista þess annað árið í röð að vinna sér þátttökurétt á Evrópumótaröði kvenna í golfi. vísir/daníel
Tveir íslenskir kylfingar verða meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna í golfi en það hefst á miðvikudag í næstu viku. Valdís Þóra Jónsdóttir, Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, tryggði sér í gær þátttökurétt á lokamótinu með því að hafna í 8.-10. sæti á úrtökumóti í Marokkó en 42 efstu kylfingarnir komust áfram.

„Ég var ekki að spila vel í dag og gerði margt illa. En það var í raun engin pressa á mér þannig séð og því var það bara fínt að geta klárað þennan lélega hring,“ sagði Valdís Þóra í samtali við Fréttablaði í gær. „Maður gat átt von á því að það kæmi einn lélegur hringur hjá mér.“

Valdís Þóra spilaði lokahringinn á sjö höggum yfir pari en á fjórtán höggum yfir pari samtals. Hún lék því fyrstu þrjá keppnisdagana á samtals sjö höggum yfir pari.

„Mér gekk heilt yfir alveg ágætlega og var aldrei að koma mér í nein alvarleg vandræði. Ég hélt bara mínu striki og það voru meira að segja nokkur pútt sem hefðu alveg eins getað dottið niður fyrir mig – en ég á þau þá inni fyrir næstu viku,“ segir hún.

Valdís Þóra komst einnig á lokastig úrtökumótaraðarinnar í fyrra en náði ekki að vinna sér þátttökurétt á sjálfri Evrópumótaröðinni. Hún segir mikilvægt að búa að þeirri reynslu. „Maður skalf á beinunum í fyrsta teig í fyrra en ég fann ekki fyrir neinu stressi í ár. Það getur hins vegar verið að maður verði aðeins á nálum í næstu viku en ekkert í líkingu við það sem maður upplifði í fyrra.“

Lokamótið fer fram í Marrakesh sem er í norðvesturhluta landsins. Þar verður keppt á tveimur völlum sem eru þó gjörólíkir að sögn Valdísar Þóru. „Þeir reyna á marga mismunandi þætti í golfinu en ég bý þó að þeirri reynslu að hafa spilað á þeim í fyrra.“

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, var þegar búin að tryggja sér þátttökurétt á lokamótinu og Valdís Þóra segir að það verði gott að hafa annan íslenskan kylfing með sér í mótinu.

„Það hjálpar alltaf að hafa einhvern með sér sem maður þekkir en þar að auki ætlar Tinna Jóhannsdóttir [fyrrum Íslandsmeistari] að fljúga út og vera kylfuberi fyrir mig. Það verður mjög gott að njóta hennar aðstoðar,“ segir hún en áður en að því kemur mun hún keppa í svokölluðu Pro-Am móti á morgun.

„Efstu ellefu kylfingarnir á þessu móti þurfa að taka þátt í því. Mér líst ekkert illa á það og lít á það sem góða æfingu fyrir mótið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×