Menning

Skáld í Bókasafni Seltjarnarness

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Linda gaf nýverið út bókina Frelsi.
Linda gaf nýverið út bókina Frelsi. Vísir/Anton Brink
Ljóðskáldin Eyþór Árnason og Linda Vilhjálmsdóttir verða gestir bókmenntakvölds Bókasafns Seltjarnarness í kvöld sem hefst klukkan 19.30.

Bæði gáfu þau Eyþór og Linda nýverið út ljóðabækur, Eyþór bókina Norður og Linda bókina Frelsi. Um bók Lindu segir útgefandi þetta:

„Frelsi geymir um fimm tugi beittra, pólitískra ljóða: meitlaðar og áhrifaríkar ljóðmyndir spegla samfélag og samtíma og þvinga jafnvel lesandann til miskunnarlausrar sjálfsskoðunar. Áleitin bók sem hreyfir við hugsunum og tilfinningum.“





Eyþór hugsar norður þegar hann yrkir.Vísir/HAG
Hér er svo tilvitnun í Eyþór: „Ég sæki hunang í bækur, smjör í snemm­sprottnar sléttur, eld í ókleifa kletta og ást í koldimma hella, vín djúpt í brunna, vatn í dökkgræna skóga, fótspor í kvöldbláa dali og heimþrá í gáskafull stef.

Þess má geta að Eyþór hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir fyrstu ljóðabókina sína, Hundgá úr annarri sveit.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×