Innlent

Skálavörður í Þórsmörk hrökk upp við óboðinn gest

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Skálaverðir í Þórsmörk að störfum.
Skálaverðir í Þórsmörk að störfum. vísir/vilhelm
„Mér brá svolítið þegar hann kom inn því hingað kemur aldrei nokkur maður á þessum tíma,“ segir Eyrún Ósk Stefánsdóttir, skálavörður í Þórsmörk, í samtali við Vísi. Eyrún lenti í nótt í þeirri áhugaverðu lífreynslu að ókunnugur maður vakti hana upp af værum svefni um miðja nótt.

Eyrún Ósk Stefánsdóttir
Staðarhaldarar á svæðinu sofa í lítilli starfsmannaaðstöðu sem, að sögn Eyrúnar, er nær alltaf ólæst þar sem fáir eru þarna á ferli. Á þriðja tímanum í nótt gerðist það að Eyrún vaknaði við það að yfir henni stóð maður sem hún kunni engin deili á. 

„Þetta var nokkuð óþægilegt,“ segir Eyrún. Hún bætir því við að hún hafi vaknað nokkuð snöggt og skipað hinum óboðna gesti að fara út. Hann hlýddi því. „Hann var víst bara að leita sér að stað til að sofa á. Þó þetta hafi verið óþægilegt í fyrstu þá er þetta eitthvað sem maður hlær að núna og síðar meir.“

Þetta er þriðja sumar Eyrúnar í skálavörslu en fyrri tvö sumrin var hún á miðjum Laugaveginum. Hún merkir því talsverðan mun í fjölda ferðamanna. „Hingað koma nokkrar rútur á degi hverjum og fjöldi gesta sem kemur hingað en gengur ekki Laugaveginn. Þetta hefur gengið vel fyrir sig. Skondnasta atvikið var sennilega þegar hingað komu ferðamenn að leita að flugvélarbrakinu á Sólheimasandi.“

Það styttist í annan endann á skálavarðarferli Eyrúnar, í það minnsta í sumar, því í haust sest hún á skólabekk og hefur nám í hjúkrunarfræði. „Ég er búin að vera hér síðan 9. júní og tekið tæpa viku í frí. Þetta er flott starf fyrir námsmann enda eyðir maður engu hérna. Ég hlakka samt alltaf til á haustin þegar þetta klárast en eiginlega jafn mikið til á vorin þegar maður kemur aftur,“ segir Eyrún að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×