Innlent

Skaðleg drykkja hjá helmingi íslenskra karla

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Með hækkandi aldri dró úr ölvunardrykkju landsmanna, meira hjá konum en körlum.
Með hækkandi aldri dró úr ölvunardrykkju landsmanna, meira hjá konum en körlum. NORDICPHOTOS/AFP
Nálægt annar hver karlmaður og þriðja hver kona á aldrinum 18–34 ára er með skaðlegt neyslumynstur áfengis. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Gallup framkvæmdi fyrir Embætti landlæknis. Könnunin fór fram sex síðustu mánuðina í fyrra.

Þegar spurt var um ölvunardrykkju, þ.e. neyslu á fimm áfengum drykkjum eða meira á einum degi, sögðust um 38 prósent karla drekka sig ölvaða einu sinni í mánuði eða oftar og um 23 prósent kvenna. Ef þetta hlutfall er heimfært upp á þjóðina alla má gera ráð fyrir að um 48 þúsund karlmenn og 29 þúsund konur, 18 ára og eldri, hafi drukkið sig ölvaða einu sinni í mánuði eða oftar, að því er segir á vef landlæknisembættisins.

Árið 2016 reyktu um 10% landsmanna daglega. Er það lítil breyting frá árinu 2015, en árið 2014 reyktu um 14 prósent daglega samkvæmt vöktun embættisins á áhrifaþáttum heilbrigðis.

Ef tekið er mið af landsmönnum öllum þá þýðir þetta að um 8.000 færri reyktu árið 2016 heldur en 2014.

Dagleg notkun 18 til 69 ára á rafsígarettum mældist um 3% árið 2016, sem gerir um sex þúsund manns sé tekið mið af þjóðinni allri. Um sjö prósent karla notuðu tóbak í vör daglega.

Úrtakið var 8.000 einstaklingar af öllu landinu, 18 ára og eldri, valdir af handahófi úr viðhorfahópi Gallup og úr þjóðskrá. Þátttökuhlutfall var 57,6 prósent. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×