Innlent

Sjúkraflutningamenn safna sjálfir fyrir kennslu - og þjálfunarsjúkrabíl

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Íslenskir sjúkraflutningamenn hafa sett á laggirnar söfnun til að geta keypt sérstakan sjúkrabíl ætlaðan til hermiþjálfunar hér á landi. Formaður Landssambands sjúkraflutningamanna telur að bíllinn myndi nýtast um allt land og verða bylting í þjálfun og menntun fyrir starfsfólk í utanspítalaþjónustu.

Sjúkraflutningamenn hafa í tvö ár kallað eftir því að keyptur verði svokallaður Simbulance til nota hér á landi. Það er sérstakur kennslu og þjálfunarsjúkrabíll sem búinn er fullkomnum hermibúnaði, svo sem hermidúkkum, svo hægt sé að æfa endurlífgun og aðra bráðaþjónustu við raunverulegar aðstæður.

Nú er svo komið að Félagsmenn í Landssambandi slökkviliðs -og sjúkraflutningamana hafa ákveðið að bíða ekki boðanna heldur safna sjálfir fyrir bílnum.

„Þetta hefur verið draumur okkar í þónokkurn tíma að eignast svona bíl en því hefur ekki verið komið til leiðar ennþá,“ segir Njáll Pálsson formaður fagdeildar sjúkraflutningamanna LSS. 

Hann segir að eftir slíka þjálfun séu sjúkraflutningamenn og heilbrigðisstarfsfólk betur í stakk búið til að takast á við raunverulegar og alvarlegar aðstæður þegar þær koma upp.

„Sérstaklega við horfum til þess sen aðrar þjóðir eru að gera í kringum okkur, og við höfum verið að bera okkur saman við hvað heilbrigðisþjónustu varðar, þá er þessi hermiþjálfun mjög árangursrík. Við trúum því að þetta yrði algjör bylting í okkar bæði þjálfunar og menntunarmálum,“ segir Njáll.  

Njáll segir málaflokkinn fjársveltan og að sú staða hafi allt of oft hamlað eðlilegri og nauðsynlegri framþóun. Sjúkraflutningamenn biðla því til almennings um aðstoð til að geta keypt bílinn en hann kostar fullbúinn um þrjátíu milljónir króna.

„Við vildum láta á þetta reyna og sjá hvort við gætum ekki náð einhverri góðri viðspyrnu fyrir þessa mikilvægu þjónustu á Íslandi.“ 

Fyrir þá sem vilja leggja málefninu lið er númer söfnunarreikningsins 0515 - 26 - 245 og kennitala 701173 – 0319. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×